FRÉTT MENNTUN 23. JÚLÍ 2024

Rúm 64% nýnema á framhaldsskólastigi árið 2018 höfðu útskrifast árið 2022. Brautskráningarhlutfallið, þ.e. hlutfall nýnema sem hefur útskrifast, hefur ekki mælst hærra í tölum Hagstofunnar sem ná aftur til nýnema ársins 1995.

Brotthvarf úr námi hefur verið nálægt 20% síðustu þrjú ár en 20,3% nýnema haustið 2018 höfðu hætt námi fjórum árum síðar. Rúmlega 15% nýnema haustsins 2018 voru enn í námi án þess að hafa útskrifast fjórum árum síðar og hefur það hlutfall ekki verið lægra.

Hæst hlutfall á meðal þeirra sem fæddust erlendis en eiga báða foreldra fædda á Íslandi
Brautskráningarhlutfall var hæst á meðal nemenda sem fæddir eru erlendis og eiga foreldra sem báðir eru fæddir á Íslandi en rúm 80% þeirra sem hófu nám haustið 2018 höfðu útskrifast árið 2022.

Alls höfðu 67% þeirra sem hafa engan erlendan bakgrunn útskrifast og rúm 64% þeirra sem fæddust erlendis og eiga eitt foreldri sem fætt er erlendis. Þá höfðu tæp 61% þeirra sem eru fæddir á Íslandi en eiga foreldra sem báðir eru fæddir erlendis útskrifast og 57% þeirra sem fæddust á Íslandi og eiga eitt foreldri fætt erlendis.

Lægst var brautskráningarhlutfallið á meðal innflytjenda, þ.e. þeirra sem fæddust erlendis og eiga báða foreldra fædda erlendis, en tæplega 41% þeirra höfðu útskrifast fjórum árum eftir upphaf náms. Brautskráningarhlutfall hefur farið hækkandi á meðal innflytjenda en það er enn mun lægra en á meðal nýnema með íslenskan bakgrunn.

Aldur við flutning til Íslands skiptir máli
Brautskráningarhlutfall innflytjenda sem fluttust til landsins fyrir sjö ára aldur var miklu hærra en hjá innflytjendum sem fluttust til landsins sjö ára eða eldri. Brautskráningarhlutfall á meðal innflytjenda, sem fluttust til landsins fyrir sjö ára aldur, var tæp 53% fjórum árum eftir upphaf náms árið 2018 en rúm 37% á meðal þeirra sem fluttust til landsins sjö ára eða eldri.

Hlutfallið var tæp 61% á meðal nemenda sem fæddust á Íslandi en eiga foreldra sem báðir eru fæddir erlendis og tæp 67% hjá þeim sem ekki teljast til innflytjenda af fyrstu eða annarri kynslóð, þ.e. eru fæddir á Íslandi og annað foreldri fæddist erlendis, eru fæddir erlendis en báðir foreldrar fæddust á Íslandi, eru fæddir erlendis og eiga eitt foreldri fætt erlendis eða hafa engan erlendan bakgrunn.

Að sama skapi höfðu mun fleiri innflytjendur, sem fluttust til landsins sjö ára eða eldri, hætt námi en nemendur með annan bakgrunn.

Hvað er brotthvarf?
Brotthvarf nemenda úr skóla má skilgreina á marga vegu. Í talnaefni Hagstofunnar er miðað við svokallað árgangsbrotthvarf, þar sem nýnemum í dagskóla að hausti er fylgt eftir og staðan tekin eftir fjögur ár, sex ár og sjö ár.

Um gögnin
Nýnemar eru nemendur sem voru skráðir í nám á framhaldsskólastigi í fyrsta skipti að hausti ef miðað er við upphaf nemendaskrár Hagstofu Íslands árið 1975. Allir dagskólanemendur eru teknir með óháð aldri. Til brautskráðra teljast þeir sem hafa brautskráðst af námsbraut á framhaldsskólastigi sem er a.m.k. tvö ár að lengd.

Til nemenda sem enn eru í námi teljast nemendur í dagskóla, kvöldskóla og í fjarnámi á framhaldsskólastigi og háskólastigi á Íslandi að hausti sem ekki hafa útskrifast. Brottfallnir eru þeir sem ekki hafa brautskráðst og eru ekki í námi. Talnaefni Hagstofunnar um brautskráningarhlutfall og brotthvarf á framhaldsskólastigi nær aftur til nýnema ársins 1995.

Upplýsingar um bakgrunn nemenda eru teknar úr mannfjöldagögnum Hagstofu Íslands. Til innflytjenda teljast einstaklingar sem eru fæddir erlendis og eiga báða foreldra fædda erlendis. Skiptinemar, sem koma til ársdvalar á Íslandi, teljast með innflytjendum í þessum tölum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang menntamal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.