FRÉTT MENNTUN 14. OKTÓBER 2025

Haustið 2017 hófu 2.213 nýnemar þriggja ára nám til bakkalárgráðu í háskólum á Íslandi. Þremur árum síðar höfðu 42,3% þeirra brautskráðst á tilætluðum tíma með bakkalárgráðu og 1,3% til viðbótar höfðu útskrifast úr öðru háskólanámi, svo sem tveggja ára diplómanámi. Þá höfðu 18,3% hætt námi eða tekið sér tímabundið hlé en 38,0% voru enn í háskólanámi án þess að hafa brautskráðst. Tæplega 44% kvenna höfðu brautskráðst úr háskólanámi eftir þrjú ár og rúm 40% karla.

Rúmlega sjö af hverjum tíu nýnemum hafa lokið prófi sex árum eftir innritun
Þegar litið er á stöðu þeirra sem hófu nám haustið 2017, sex árum eftir innritun, þ.e. árið 2023, og þremur árum eftir að námi hefði átt að vera lokið, höfðu 71,8% nýnema lokið bakkalárgráðu og 1,7% höfðu lokið öðru háskólanámi.

Þetta er hærra brautskráningarhlutfall en í fyrri tölum Hagstofunnar, hvort sem litið er til hlutfalls þeirra sem luku prófi á þremur árum eða sex árum. Að sama skapi hefur brottfall minnkað. Fyrri tölur náðu til nýnema haustsins 2004, 2011 og 2014. Þeir nemendur sem útskrifuðust árið 2020 að loknu þriggja ára námi, eða árið 2023, að loknu sex ára námi stunduðu nám á tímum kórónuveirufaraldursins. Ekki er ljóst hvaða áhrif það hafði á hlutfall þeirra sem luku námi og brottfall nemenda.

Tæplega fimmti hver nýnemi hætti í námi á fyrsta námsári
Alls hættu 18,4% nýnema haustsins 2017 námi á fyrsta námsári en 80,3% héldu áfram námi til bakkalárgráðu og 1,3% höfðu skipt yfir í annað háskólanám.

Þriðjungur nýnema lauk framhaldsskóla sama ár og háskólanám hófst
Af 2.213 nýnemum í námi til bakkalárgráðu haustið 2017 höfðu 740 lokið framhaldsskólanámi sama ár eða 33,4%. Hlutfallið hefur farið lækkandi frá árinu 2011 þegar það var 42,9%.

Hærra brautskráningarhlutfall nýnema sem eiga háskólamenntaða foreldra
Þremur árum eftir upphaf náms höfðu 47,3% nýnema sem eiga háskólamenntaða foreldra útskrifast af háskólastigi en 41,1% nýnema sem eiga foreldra sem hafa lokið grunnmenntun, þ.e. grunnskólanámi eða stuttu námi á framhaldsskólastigi. Hlutfall brautskráðra var lægst á meðal nýnema sem eiga foreldra með starfs- eða framhaldsskólamenntun en það var 37,4%. Brotthvarf eftir þrjú ár var mest hjá börnum foreldra með starfs- eða framhaldsskólamenntun, eða 23,1%, en það var 15,5% á meðal barna háskólamenntaðra.

Fleiri nemendur í einkaskólum hafa útskrifast eftir þrjú ár
Þegar tölur um brautskráningarhlutfall og brotthvarf í háskólum eftir rekstrarformi eru skoðaðar má sjá að eftir þrjú ár hafa 50,5% nemenda einkaskóla brautskráðst á móti 40,8% nýnema í opinberum háskólum. Sex árum eftir upphaf náms er brautskráningarhlutfallið einnig hærra í einkaskólunum eða 78,1% á móti 71,6% í opinberu skólunum.

Hvað er brotthvarf?
Brotthvarf nemenda úr skóla má skilgreina á marga vegu. Hér er miðað við svokallað árgangsbrotthvarf þar sem nýnemum í fullu námi að hausti er fylgt eftir og staða þeirra skoðuð eftir þrjú ár og sex ár frá upphafi náms.

Um gögnin
Nýnemar í þessum tölum eru þeir nemendur sem voru skráðir í þriggja ára nám til bakkalárgráðu í fyrsta skipti að hausti miðað við upphaf nemendaskrár Hagstofunnar árið 1975. Í þessum tölum eru allir íslenskir ríkisborgarar í fullu námi á fyrsta námsári teknir með en fullt nám er skilgreint á þann hátt að nemendur séu skráðir í 75% eininga eða meira af því sem telst vera fullt nám. Til brautskráðra teljast þeir sem hafa brautskráðst með háskólapróf eftir þrjú ár og sex ár frá upphafi náms. Til nemenda sem enn eru í námi teljast nemendur í námi á háskólastigi á Íslandi að hausti sem ekki hafa útskrifast. Þessar tölur voru unnar samkvæmt skilgreiningum OECD og í september sl. voru gefnar út sambærilegar tölur fyrir aðildarlönd samtakanna.

Aðferðarfræðin er önnur en notuð hefur verið fyrir tölur um brautskráningarhlutfall nemenda á háskólastigi sem birtar hafa verið á vef Hagstofunnar annað hvort ár en í þeim tölum eru bæði taldir nýnemar í fullu námi og hlutanámi með íslenskt og erlent ríkisfang.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.