FRÉTT MENNTUN 25. APRÍL 2007


Börn í leikskólum hafa aldrei verið fleiri
Í desember 2006 sóttu 17.216 börn leikskóla á Íslandi og hafa leikskólabörn aldrei verið fleiri. Leikskólabörnum hefur fjölgað um 352 frá desember 2005 eða um 2,1%. Þetta er töluvert meiri fjölgun en undanfarin ár. Milli áranna 2004 og 2005 var fjölgunin 0,65%. Alls sækja 81% 1-5 ára barna leikskóla, og er hlutfallið 96% í þriggja ára og fjögurra ára aldurshópunum. Í desember 2006 sóttu 91% tveggja ára barna leikskóla og þriðjungur eins árs barna.

Viðvera barna lengist stöðugt og viðvera drengja er lengri en stúlkna
Þegar skoðaðar eru tölur aftur til ársins 1998 sést að viðvera barna í leikskólum er stöðugt að lengjast. Hlutfall þeirra barna sem skráð eru í a.m.k. 8 tíma viðveru á dag fer sífellt hækkandi. Árið 1998 voru rúmlega 40% (40,3%) barna í leikskólum skráð í 8 tíma viðveru eða lengur. Fjórum árum síðar er þetta hlutfall komið í rúmlega 60% (61,7%) og árið 2006 eru 75% allra barna í leikskólum skráð í a.m.k. 8 tíma daglega viðveru. Hærra hlutfall drengja en stúlkna er skráð í lengri viðveru. Þannig eru í desember 2006 75,8% allra drengja í leikskólum í a.m.k. 8 tíma vistun á meðan samsvarandi hlutfall stúlkna er 74,3%. Fyrir tveimur árum síðan voru 70,1% allra drengja í þetta langri vistun á meðan hlutfall stúlkna var 68,4%. Það skal þó tekið fram að þetta er sú vistun sem foreldrar hafa tryggt sér en ekki er óalgengt að foreldrar sæki börn sín áður en dvalartími þeirra er útrunninn.

 

Tæplega 19% fjölgun barna á einkareknum leikskólum frá 2005
Starfandi leikskólar voru 267 talsins í desember 2006 og hefur fjölgað um 5 frá desember 2005. Á árinu 2006 voru 8 nýir leikskólar opnaðir og 3 leikskólar hættu starfsemi. Af þessum nýju leikskólum eru 5 leikskólar einkareknir og í þeim dvelja samtals 367 börn. Alls sóttu 1.831 barn nám í 31 einkareknum leikskóla í desember 2006 og hefur þeim fjölgað úr 1.542 börnum árið áður, eða um 18,7%. Í desember 2006 voru 10,6% leikskólabarna í einkareknum leikskólum en árið 1998 var hlutfallið 5,3% (mynd 2).

 


Áframhaldandi fjölgun barna með erlent móðurmál
Börnum sem hafa annað móðurmál en íslensku fjölgar áfram og eru nú 1.333 talsins, eða 7,7% allra leikskólabarna. Algengasta erlenda móðurmál leikskólabarna er pólska (229 börn) og í öðru sæti er enska (171 börn). Frá árinu 1998 hefur enskumælandi leikskólabörnum fjölgað um 38% en á sama tíma hefur pólskumælandi börnum fjölgað um  487%. Í desember 2006 eru 318 leikskólabörn skráð með erlent ríkisfang og eru flestir erlendir ríkisborgar frá Austur-Evrópu, 52,5% erlendra leikskólabarna.

Tæplega þúsund börn njóta sérstaks stuðnings
Í desember 2006 nutu 984 börn sérstaks stuðnings vegna fötlunar, félagslegra eða tilfinningalegra erfiðleika. Þetta eru 5,7% allra leikskólabarna. Þetta er fjölgun frá árinu 2005 þegar börn sem nutu stuðnings voru 907 en sami fjöldi barna og árið 2004. Þó jafn mörg börn njóti stuðnings nú og fyrir tveimur árum hefur þeim fækkað hlutfallslega því á þessu árabili hefur leikskólabörnum fjölgað um 461.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.