Nemendur í grunnskólum landsins voru 46.725 haustið 2025 og fækkaði um 437 frá haustinu 2024 eða um 0,9%. Af öllum nemendum voru rúmlega 8,6% innflytjendur. Þessar tölur byggja á upplýsingum um nemendur í grunnskólum á Íslandi í október ár hvert.
Alls störfuðu 177 grunnskólar á landinu skólaárið 2025-2026 sem er fjölgun um þrjá skóla frá fyrra ári. Einkareknir grunnskólar voru 13 talsins með 1.500 nemendur og í sérskólum reknum af opinberum aðilum, sem eru þrír talsins, stunduðu 191 nemandi nám.