FRÉTT MENNTUN 21. DESEMBER 2015

Atvinnuþátttaka eykst og atvinnuleysi minnkar með aukinni menntun. Þannig voru 94,2% þeirra sem höfðu háskólamenntun í aldurshópnum 2564 ára á vinnumarkaði árið 2014; 90,2% íbúa með framhaldsmenntun og 80,4% þeirra sem höfðu eingöngu lokið grunnmenntun. Atvinnuleysi var 3,6% meðal háskólamenntaðra sama ár, 4,0% meðal fólks með menntun á framhaldsskólastigi og 4,7% meðal þeirra sem höfðu lokið grunnmenntun.

Árið 2014 voru háskólamenntaðir 2564 ára íbúar á Íslandi í fyrsta skipti fleiri en íbúar með menntun á framhaldsskólastigi, eða 60.800, en menntaðir á framhaldsskólastigi voru 59.300. Munurinn er þó innan skekkjumarka. Háskólamenntaðir 2564 ára voru 37,0% íbúa á Íslandi, 2.000 fleiri en árið 2013. Þá höfðu 43.900 manns í þessum aldurshópi eingöngu lokið grunnmenntun, þ.e. styttra námi en framhaldsskólastigi, samkvæmt niðurstöðum úr Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Það eru 26,7% íbúa og hefur fækkað um 1.500 manns frá fyrra ári.

Mikill munur var á menntun íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar árið 2014. Á höfuðborgarsvæðinu höfðu 21,9% íbúa á aldrinum 25-64 ára eingöngu lokið grunnmenntun en 44,1% höfðu lokið háskólamenntun. Utan höfuðborgarsvæðisins höfðu 35,3% íbúa eingöngu lokið grunnmenntun og 24,1% lokið háskólamenntun.

Hæsta menntun 25–64 ára 2014        
Hlutfall Alls  Karlar  Konur Höfuðborgarsvæði Landsbyggð
Grunnmenntun 26,7 25,8 27,6 21,9 35,3
Framhaldsmenntun 36,1 43,1 29,0 33,8 40,2
Háskólamenntun 37,0 30,8 43,2 44,1 24,1
Upplýsingar vantar 0,3 0,3 0,2 0,2 0,4
Alls 100,0 100,0 100,0 100,0

100,0

Yngra fólk hefur meiri menntun
Yngra fólk hefur almennt lokið meiri menntun en þeir sem eldri eru. Í aldurshópnum 30-49 ára höfðu 23,9% eingöngu lokið grunnmenntun og 41,7% lokið háskólamenntun árið 2014. Í aldurshópnum 65-74 ára höfðu hins vegar 45,8% eingöngu lokið grunnmenntun og 18,9% lokið háskólamenntun.

Um gögnin
Tölurnar eru byggðar á niðurstöðum úr Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Vinnumarkaðsrannsóknin byggir á alþjóðlegum stöðlum og skilgreiningum. Frá árinu 2003 er heildarúrtak Vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar rúmlega 3.800 einstaklingar í hverjum ársfjórðungi og svarhlutfall um 80%. Í úrtökuramma rannsóknarinnar eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar 16–74 ára sem skráðir eru í þjóðskrá og eru með lögheimili á Íslandi. Heildarúrtak ársins 2014 var 15.761 manns. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 15.390 einstaklingar. Nothæf svör fengust frá 12.142 einstaklingum sem jafngildir 78,9% endanlegri svörun. Allar niðurstöður hafa verið vegnar eftir kyni og aldri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang menntamal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.