Árið 2024 voru 40% landsmanna á aldrinum 16-74 ára með háskólamenntun, rúm 31% karla og rúmlega 49% kvenna. Rúmur fjórðungur íbúa landsins á þessum aldri hafði eingöngu lokið grunnmenntun og um 34% höfðu lokið menntun á framhaldsskólastigi. Hlutfall 16-74 ára íbúa með háskólamenntun á höfuðborgarsvæðinu var um 45% en um 30% utan höfuðborgarsvæðisins.