Skólasókn á háskólastigi dróst lítillega saman milli áranna 2024 og 2025 samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Mest lækkun í hópi karla var hjá þeim sem voru 25 ára þar sem skólasókn fór úr 13,7% árið 2024 í 10,8% árið 2025. Meðal kvenna var lækkunin mest hjá 26 ára konum, úr 20,7% í 18,0%.
Skólasókn á háskólastigi var áfram mest meðal ungs fólks á aldrinum 19-25 ára. Meðal kvenna var skólasókn hæst hjá 21 árs konum, 38,2% árið 2025 samanborið við 39,8% árið áður. Meðal karla var skólasókn einnig mest hjá 21 árs körlum, 22,7% árið 2025 en 25,1% árið 2024.
Skólasókn á háskólastigi var hærri meðal kvenna en karla í öllum aldurshópum. Mestur munur var á skólasókn í aldurshópnum 22 ára þar sem skólasókn var 37% meðal kvenna en aðeins 20,9% meðal karla.
Skólasókn á háskólastigi er enn hæst meðal þeirra með lögheimili í Reykjavík og höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur þar sem meðalhlutfall skólasóknar var 18,9%. Meðalhlutfall skólasóknar var 12,6% utan höfuðborgarsvæðisins. Lægsta hlutfall skólasóknar utan höfuðborgarsvæðisins var meðal þeirra með lögheimili á Suðurlandi, 9,8%, en hæst meðal þeirra með lögheimili á Norðurlandi, 15%.
Talnaefni
Menntun - yfirlit
Framhaldsskólastig
Háskólastig