FRÉTT MENNTUN 18. APRÍL 2023

Nemendur í grunnskólum voru 47.115 haustið 2022 og hafa ekki áður verið fleiri nemendur í skyldunámi á Íslandi. Grunnskólanemum hefur fjölgað um 256 frá haustinu 2021 eða um 0,5%. Skýringin er aukinn aðflutningur fólks til landsins.

Vorið 2022 kláruðu 4.604 nemendur 10. bekk en 4.258 nemendur hófu nám í 1. bekk sama haust. Alls voru 1.072 nýir nemendur í 2.-10. bekk sem ekki voru í grunnskólum á Íslandi haustið 2021. Eru börn með íslenskt ríkisfang um þriðjungur þeirra en tveir þriðju eru erlendir ríkisborgarar. Þessar tölur byggja á upplýsingum um nemendur í grunnskólum á Íslandi í október ár hvert.

Grunnskólanemendur með erlent móðurmál aldrei fleiri
Nemendum sem hafa erlent tungumál að móðurmáli hefur fjölgað ár frá ári. Haustið 2022 höfðu 6.570 grunnskólanemendur erlent tungumál að móðurmáli, eða 13,9% nemenda, sem er fjölgun um 760 nemendur frá árinu áður. Hafa ber í huga að hluti þessara nemenda hefur einnig íslensku sem móðurmál. Algengasta erlenda móðurmál nemenda í grunnskólum er pólska, sem er töluð af tæplega 2.100 nemendum, og meira en 300 börn tala ensku, arabísku, spænsku eða filippseysk mál. Þá má nefna að börnum sem hafa úkraínsku sem móðurmál fjölgaði úr 40 í 210 á milli ára.

Nemendum með erlent ríkisfang fjölgaði einnig frá fyrra ári og voru 4.114 haustið 2022 og hafði fjölgað um 683 nemendur. Mest munar um að börnum frá Úkraínu fjölgaði um 203, börnum með pólskt ríkisfang fjölgaði um 107 og börnum frá Venesúela fjölgaði um 95. Nemendum með íslenskt ríkisfang fækkaði um 427 á milli áranna 2021 og 2022.

Starfandi grunnskólar eru 174 talsins
Alls starfa 174 grunnskólar á landinu skólaárið 2022-2023 sem er óbreyttur fjöldi frá fyrra ári. Vert er að minnst á nýjan skóla; Ásgarð - skóla í skýjunum, sem er eini grunnskólinn á Íslandi sem er alfarið óháður staðsetningu. Einkaskólar eru 13 talsins með rúmlega 1.450 nemendur. Í sérskólum, sem eru þrír talsins, stunduðu 174 nemendur nám.

Í þremur grunnskólum voru færri en tíu nemendur haustið 2022 en það eru Grunnskólinn í Hofgarði með þrjá nemendur, Grunnskóli Raufarhafnar með sex nemendur og Grunnskóli Drangsness þar sem sjö nemendur stunduðu nám.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang menntamal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.