Hagstofan hefur gefið út nýtt flokkunarkerfi fyrir menntunarstöðu einstaklinga, ÍSMENNT2011. Flokkunarkerfið tekur mið af alþjóðlega menntunarstaðlinum, ISCED-2011, en er að öðru leyti sniðið að þeirri menntun sem íslenskir námsmenn hafa aflað sér frá síðustu öld.
Flokkunarkerfið greinir fengna menntun í níu stig, frá 0 til 8, en sex stiganna skiptast auk þess í fleiri menntunarflokka til nánari sundurliðunar. Alls er 31 menntunarflokkur í staðlinum. Hagstofan nýtir flokkunarkerfið í rannsóknum sínum, meðal annars í launarannsókn Hagstofunnar og við flokkun menntunar í ýmsum gagnagrunnum. Öllum er heimil notkun á staðlinum.
| Tafla 1. Stig menntunarstöðu í ÍSMENNT2011 | ||
| Stig | Heiti | Fjöldi flokka | 
| 0 | Engin menntun eða minna en barnapróf | 1 | 
| 1 | Barnaskólamenntun | 1 | 
| 2 | Grunnmenntun | 8 | 
| 3 | Framhaldsskólamenntun | 8 | 
| 4 | Viðbótarstig | 5 | 
| 5 | Háskólamenntun, stutt nám | 2 | 
| 6 | Háskólamenntun, bakkalárgráða | 3 | 
| 7 | Háskólamenntun, meistaragráða | 2 | 
| 8 | Doktorsmenntun | 1 | 
| 9 | Óþekkt* | - | 
| *Ekki sérstakt stig, en haft með til hægðarauka við flokkun menntunarstöðu. | ||
ÍSMENNT2011: Flokkun menntunarstöðu — Hagtíðindi