FRÉTT MENNTUN 21. DESEMBER 2015

Árið 2014 sóttu 42.100 manns á aldrinum 25–64 ára sér fræðslu, annað hvort í skóla eða aðra fræðslu með leiðbeinanda, eða 25,6% landsmanna. Það er fjölgun um 500 manns frá árinu 2013. Frá árinu 2003 hefur hlutfall landsmanna á aldrinum 2564 sem stundar einhvers konar menntun heldur farið hækkandi. Hlutfallið var 22,2% árið 2003 en fór hæst í 27,6% árið 2006.

Sé miðað við aldurinn 1674 ára sóttu 70.800 manns sér fræðslu árið 2014, 30,9% landsmanna, sem er fjölgun um 1.200 manns frá árinu áður.

Hlutfall þeirra sem stunda símenntun hækkar með meiri menntun
Meira en þriðjungur þeirra sem hafa lokið háskólamenntun sóttu símenntun árið 2014 en rúm 17% þeirra sem eingöngu höfðu lokið grunnmenntun.

Fleiri konur en karlar sækja sér fræðslu. Þannig sóttu 30,0% kvenna á aldrinum 2564 ára einhvers konar fræðslu árið 2014, þar með talið nám í skóla, en 21,2% karla. Konur eru hlutfallslega fleiri en karlar meðal þeirra sem sækja námskeið, stunda nám í skóla og sækja sér annars konar fræðslu óháð menntunarstöðu.

Þátttaka 2564 ára í símenntun eftir kyni og menntunarstöðu 2014
Hlutfall Alls  Karlar  Konur
       
Alls 25,6 21,2 30,0
Grunnmenntun 17,2 14,9 19,4
Framhaldsmenntun 22,5 18,2 28,8
Háskólamenntun 34,9 31,0 37,8

Þátttaka í símenntun utan skóla er meiri meðal þeirra sem hafa meiri menntun
Alls stunduðu 28.400 manns símenntun utan skóla árið 2014, sóttu t.d. námskeið, ráðstefnu eða fyrirlestur; 17,3% landsmanna á aldrinum 2564 ára. Símenntun utan formlegs náms í skóla er meira sótt af þeim sem hafa lokið meiri menntun. Meðal þeirra sem hafa lokið háskólamenntun var hlutfallið 26,2%, 13,6% meðal þeirra sem hafa lokið framhaldsskóla og 9,9% meðal þeirra sem aðeins hafa grunnmenntun að baki.

 


Rúm 37% atvinnulausra sóttu símenntun árið 2014
Þátttaka í símenntun er meiri meðal atvinnulausra og fólks utan vinnumarkaðar en meðal starfandi fólks. Þannig sóttu 37,1% atvinnulausra 1674 ára sér fræðslu árið 2014, 33,4% þeirra sem voru utan vinnumarkaðar en 29,9% starfandi fólks. Formleg menntun í skóla er talin með en margir þeirra yngri, sem eru utan vinnumarkaðar, eru námsmenn.

Þátttaka í símenntun mikil á Íslandi miðað við önnur Evrópulönd
Ísland er í fjórða sæti 33 Evrópuþjóða þegar litið er á þátttöku 2564 ára í símenntun árið 2014. Aðeins í Danmörku (31,7%), Sviss (31,7%) og Svíþjóð (28,9%) og er þátttakan meiri en á Íslandi. Meðaltal Evrópusambandsríkjanna 28 er 10,7%. Þátttaka í símenntun í Evrópu er meiri í norðvestur Evrópu en minni sunnar og austar í álfunni.

Um gögnin
Tölurnar eru byggðar á niðurstöðum úr Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Vinnumarkaðsrannsóknin byggir á alþjóðlegum stöðlum og skilgreiningum. Frá árinu 2003 er heildarúrtak Vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar rúmlega 3.800 einstaklingar í hverjum ársfjórðungi og svarhlutfall um 80%. Í úrtökuramma rannsóknarinnar eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar 16–74 ára sem skráðir eru í þjóðskrá og eru með lögheimili á Íslandi. Heildarúrtak ársins 2014 var 15.761 manns. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 15.390 einstaklingar. Nothæf svör fengust frá 12.142 einstaklingum sem jafngildir 78,9% endanlegri svörun. Allar niðurstöður hafa verið vegnar eftir kyni og aldri.

Símenntun er skilgreind sem öll menntun sem einstaklingur sækir, hvort sem er formlegt nám í skóla eða menntun utan skóla, s.s. á námskeiði, fyrirlestri eða á ráðstefnu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang menntamal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.