FRÉTT MENNTUN 22. JANÚAR 2008

Skólamáladeild Hagstofu Íslands hefur tekið saman tölur um fjölda skráðra nemenda í framhaldsskólum og háskólum haustið 2007 og gefið út hefti í ritröðinni Hagtíðindi.

Alls eru 46.068 skráningar í framhaldsskóla og háskóla
Haustið 2007 eru skráðir nemendur á framhalds- og háskólastigi fleiri en nokkru sinni fyrr eða 46.068. Í framhaldsskóla eru skráðir 28.340 nemendur og 17.728 nemendur í háskóla.

Skráðum nemendum á háskólastigi hefur fjölgað um 68,9% frá hausti 2000 en nemendum á framhaldsskólastigi hefur fjölgað um 42,3% á sama tímabili.

Nemendum fjölgar í fjarnámi en fækkar í kvöldskólum
Haustið 2007 stunda 80,4% nemenda nám í dagskóla, 15,3% nemenda eru skráðir í fjarnám og 4,3% nemenda stunda nám í kvöldskólum. Kvöldskólanám hefur verið á undanhaldi allt frá 2003 en það haust voru 8,1% nemenda skráðir í kvöldskólanám. Nemendum í fjarnámi fjölgar hins vegar umtalsvert á sama tíma eða um 3.085, sem er 77,9% aukning á tímabilinu.


 

Grunnskólanemendur sækja í framhaldsskólanám
Á haustmisseri 2007 voru 1.336 grunnskólanemendur skráðir til náms í framhaldsskólum landsins, 620 piltar og 716 stúlkur. Grunnskólanemendur eru 4,7% af skráðum nemendum í framhaldsskólum. Haustið 2006 voru 1.042 grunnskólanemendur skráðir til náms í framhaldsskólum, 515 piltar og 527 stúlkur, eða 3,9% skráðra nemenda í framhaldsskólum. Að auki taka sumir grunnskólanemendur framhaldsskólaáfanga í grunnskólum og koma ekki fram í þessum tölum.

Konur eru fleiri en karlar bæði á framhaldsskólastigi og háskólastigi
Konur eru umtalsvert fleiri en karlar meðal nemenda í framhaldsskólum og háskólum, eða 6.542 fleiri. Alls stunda 26.305 konur nám á móti 19.763 körlum. Konur eru 57,1% nemenda á þessum tveimur skólastigum en hlutur karla er 42,9%. Ef skipting kynja er skoðuð eftir skólastigi eru konur 53,3% nemenda á framhaldsskólastigi en 63,1% nemenda á háskólastigi.

Þegar skipting nemenda eftir kyni er skoðuð í Háskóla Íslands má sjá að konur eru meirihluti nemenda í öllum deildum nema verkfræðideild. Í verkfræðideild eru karlar 70,4% nemenda en konur 29,6%. Mestur er munurinn í hjúkrunarfræðideild en þar eru konur 97,0% nemenda en karlar einungis 3,0%. Jafnast er hlutfall kynja í lagadeild þar sem konur eru 51,9% nemenda.


Í ofangreindum Hagtíðindum má finna yfirlitstölur um heildarfjölda skráðra nemenda í framhalds- og háskólum frá árinu 2001 til 2007. Einnig sundurliðaðar tölur eftir skólastigi, kennsluformi og tegundum skóla fyrir sama tímabil. Þá er að finna í ritinu ítarlegar upplýsingar um fjölda skráðra nemenda haustið 2007 eftir einstaka skólum, námsbraut, kyni og kennsluformi. Loks má finna upplýsingar um fjölda nemenda eftir námsstöðu þeirra. 

Skráðir nemendur í framhalds- og háskólum haustið 2007 - Hagtíðindi

Talnaefni:
  Framhaldsskólar
  Háskólar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.