FRÉTT MENNTUN 21. OKTÓBER 2024

Hagstofan birtir nú í fyrsta skipti tölur um starfsfólk í leikskólum eftir bakgrunni. Starfsfólki með erlendan bakgrunn hefur fjölgað á leikskólum landsins undanfarin ár. Þannig féll hlutfall starfsfólks sem var án erlends bakgrunns úr 78,8% árið 2020 í 71,7% árið 2023 en hlutfall innflytjenda sem starfa á leikskólum hækkaði úr 15,5% í 21,6% á sama tíma.

Þegar aðeins er litið á kennara og annað starfsfólk við uppeldi og menntun barna, að frátöldum yfirmönnum, voru innflytjendur 23,3% starfsfólks í desember 2023 en 19,8% ef yfirmenn eru taldir með. Hlutfall innflytjenda er þó langhæst á meðal annars starfsfólks, s.s. þeirra sem starfa í eldhúsi og við þrif en í þeim hópi voru innflytjendur 53,0% starfsfólks í desember 2023.

Rúmlega einn af hverjum fjórum sem starfa við uppeldi og menntun með kennsluréttindi
Alls störfuðu 1.802 kennarar með kennsluréttindi í leikskólum á Íslandi í desember 2023. Þar af voru 1.568 menntaðir sem leikskólakennarar. Samtals störfuðu 6.580 við uppeldi og menntun leikskólabarna, þar af 27,4% menntaðir kennarar. Hlutfallið hækkaði lítillega frá árinu á undan þegar það var 26,6%. Alls höfðu 1.038 starfsmenn við uppeldi og menntun leikskólabarna lokið annarri uppeldismenntun en ófaglært starfsfólk var 56,8% starfsfólks við uppeldi og menntun árið 2023, lítið eitt lægra hlutfall en árið áður.

Í desember 2023 voru 32,9% starfsfólks við uppeldi og menntun með grunnpróf á háskólastigi og 13,9% með meistaragráðu eða meiri menntun. Rúmur helmingur (53,2%) var með menntun á framhaldsskólastigi eða minni menntun.

Tæplega sjö þúsund störfuðu á leikskólum í desember 2023
Alls störfuðu 6.963 í leikskólum í desember 2023 og hafði fækkað um 156 frá fyrra ári, eða um 2,2%. Leikskólabörnum fækkaði um 145 (-0,7%) á sama tímabili. Leikskólar í Grindavík voru ekki starfandi á viðmiðunardeginum 1. desember en í þeim leikskólum störfuðu um 70 starfsmenn árið áður. Starfsmönnum í launuðu leyfi á viðmiðunardeginum fjölgaði um 47 á milli ára og voru 541. Stöðugildum starfsmanna fækkaði um 2,0% og voru 6.151.

Rúmlega fjórðungur starfsfólks árið 2022 var ekki starfandi ári síðar
Brottfall úr starfi hefur aukist lítið eitt frá fyrra ári en 25,9% starfsmanna við uppeldi og menntun í desember 2022 voru ekki við störf á leikskólum í desember 2023. Á meðal leikskólakennara hækkaði brottfallið úr 10,7% í 12,1% á milli ára. Brottfall á meðal starfsfólks við uppeldi og menntun var mest á meðal ófaglærðra starfsmanna en um þriðjungur þeirra sem var við störf í desember 2022 var ekki starfandi á leikskóla ári síðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang menntamal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.