FRÉTT MENNTUN 24. ÁGÚST 2007

Í lögum um framhaldsskóla segir að árlegur starfstími nemenda skuli eigi vera skemmri en níu mánuðir, þar af skuli kennsludagar ekki vera færri en 145. Samkvæmt upplýsingum frá framhaldsskólum var fjöldi reglulegra kennsludaga skólaárið 2006-2007 á bilinu 140 til 155. Meðalfjöldi reglulegra kennsludaga var 146 sem er sami dagafjöldi og skólaárið 2005-2006. Auk þeirra voru aðrir kennsludagar á bilinu 0 til 7 (með einni undantekningu), eða 2 að meðaltali. Að meðaltali voru reglulegir kennsludagar nemenda tveimur fleiri á vorönn en á haustönn.

Dagar sem einungis var varið til prófa og námsmats voru frá 20 til 36 talsins. Hússtjórnarskólarnir tveir skera sig þó úr með færri prófdaga þar sem próf eru oft tekin á kennsludögum í þessum skólum. Aðrir framhaldsskólar verja a.m.k. 22 dögum til prófa og námsmats. Að meðaltali var 26 dögum varið til prófa og námsmats sem er fækkun um einn dag frá síðastliðnu skólaári, en sami dagafjöldi og árið þar á undan. Nemendur á síðasta ári í bekkjarkerfisskólum fá í sumum tilfellum færri reglulega kennsludaga en yngri nemendur, en fá í staðinn fleiri prófdaga.

Í reglugerð um starfstíma framhaldsskóla er ákvæði um að kennslu- og prófdagar skuli ekki vera færri en 175. Í 13 skólum reyndust kennslu- og prófdagar vera færri en 175, á móti 12 skólum á síðasta skólaári.

Í kjarasamningum kennara er gert ráð fyrir samtals 175 kennslu- og prófdögum og að auki fjórum vinnudögum kennara árlega. Heildarfjöldi vinnudaga kennara á skólaárinu 2006-2007 reyndist vera frá 175 til 187. Meðalfjöldi allra vinnudaga kennara var 180, og er það sami dagafjöldi og síðastliðin skólaár. Þar af voru að meðaltali 177 á árlegum starfstíma skóla, og hafa ekki orðið breytingar þar á frá fyrra skólaári.

Bekkjarkerfi er við lýði í 6 framhaldsskólum á landinu og áfangakerfi í 28 skólum; óbreytt frá síðasta ári.

Í gagnasöfnun um skólahald kemur fram að sérdeild er starfandi við 17 framhaldsskóla.

Gagna um fjölda kennsludaga, prófdaga og annarra vinnudaga kennara var aflað frá 34 framhaldsskólum. Tveir skólar, Menntaskólinn Hraðbraut og Snyrtiskólinn starfa eftir þriggja anna kerfi og eru ekki taldir með í meðaltölunum hér að ofan.  

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.