FRÉTT MENNTUN 22. ÁGÚST 2008

Hagstofa Íslands birtir nú upplýsingar um starfstíma í framhaldsskólum skólaárið 2007–2008. Á síðastliðnu skólaári tók einn nýr framhaldsskóli til starfa, Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi. Í lögum um framhaldsskóla segir að árlegur starfstími nemenda skuli eigi vera skemmri en níu mánuðir, þar af skuli kennsludagar ekki vera færri en 145. Samkvæmt upplýsingum frá framhaldsskólum var fjöldi reglulegra kennsludaga skólaárið 2007–2008 á bilinu 144 til 156. Meðalfjöldi reglulegra kennsludaga var 148 sem er aukning um tvo daga frá fyrra skólaári. Auk þeirra voru aðrir kennsludagar á bilinu 0 til 4 (með einni undantekningu), eða 2 að meðaltali. Að meðaltali voru reglulegir kennsludagar nemenda tveimur fleiri á vorönn en á haustönn.

Í reglugerð um starfstíma framhaldsskóla er ákvæði um að kennslu- og prófdagar skuli ekki vera færri en 175. Í 11 skólum reyndust kennslu- og prófdagar vera færri en 175.

Samkvæmt upplýsingum skóla var fjöldi daga sem einungis var varið til prófa og námsmats frá 8 til 32, með einni undantekningu. Að meðaltali var 25 dögum varið til prófa og námsmats sem er fækkun  um einn dag frá síðastliðnu skólaári.


Í kjarasamningum kennara er gert ráð fyrir samtals 175 kennslu- og prófdögum á níu mánaða starfstíma skóla og að auki fjórum vinnudögum kennara utan árlegs níu mánaða starfstíma. Heildarfjöldi vinnudaga kennara á skólaárinu 2007–2008 reyndist vera frá 175 til 205. Meðalfjöldi allra vinnudaga kennara var 182, og er það fjölgun um 2 frá  sl. skólaári.  Þar af voru að meðaltali 178 á árlegum starfstíma skóla.

Í gagnasöfnun um skólahald er einnig spurt um hvort sérdeild sé starfandi við skólann eða ekki.  Fram kemur að sérdeild er starfandi við 21 framhaldsskóla.  Þá er einnig spurt um form kennslunnar, hvort í skólanum sé áfangakerfi eða bekkjarkerfi.  Þegar þær upplýsingar eru skoðaðar kemur fram að bekkjarkerfi er aðeins við lýði í 6 framhaldsskólum á landinu.

Gagna um fjölda kennsludaga, prófdaga og annarra vinnudaga kennara var aflað frá 35 framhaldsskólum. Tveir skólar, Menntaskólinn Hraðbraut og Snyrtiskólinn, starfa eftir þriggja anna kerfi og eru ekki taldir með í tölunum hér að ofan.  

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.