FRÉTT MENNTUN 01. OKTÓBER 2008

Í lögum um grunnskóla segir að árlegur starfstími nemenda í grunnskóla skuli á hverju skólaári vera að lágmarki níu mánuðir. Starfstími nemenda er talinn í skóladögum, sem skiptast í kennsludaga, prófdaga og aðra daga. Með öðrum dögum er átt við þá daga þar sem skólastarf samkvæmt stundaskrá undir stjórn kennara fer ekki fram, t.d. þegar farið er í skólaferðalög og vettvangsferðir. Lágmarksfjöldi kennslustunda í 1.-4. bekk skal vera 30 stundir (1.200 mín.), á miðstigi, þ.e. í 5.-7. bekk, skal að lágmarki kenna 35 stundir (1.400 mín.) og í 8.-10. bekk að lágmarki 37 kennslustundir (1.480 mín.) á viku samkvæmt námsskrá.

Skóladagar eru 179 að meðaltali
Hagstofa Íslands safnar upplýsingum frá grunnskólum að vori. Í gögnum frá vori 2008 er ekki marktækur munur á fjölda skóladaga eftir bekkjum. Meðalfjöldi skóladaga allra bekkja var 179,2. Skóladagar voru frá 172 til 189 með einni undantekningu. Í einum skóla eru skóladagar 139 og er sá skóli með undanþágu fyrir nemendur 1.-3. bekkjar vegna skipulags skólaaksturs. Fæstir voru prófdagar hjá nemendum í 1. bekk; 0,5 dagar. Flestir voru prófdagarnir hjá 10. bekkingum; 7,2 að meðaltali.

Skólaárið 2007-2008 voru 174 grunnskólar starfandi á Íslandi. Ekki er öllum árgöngum kennt í öllum skólum landsins. Flestir skólar kenna 2. bekk (7 ára börn), eða 167 skólar. Elstu nemendunum, 10. bekk, er kennt í 138 skólum (sjá mynd).


 

Starfsdagar kennara eru 13 á skólaári
Í vorskýrslu grunnskóla er einnig spurt um vinnudaga kennara án barna, svokallaða starfsdaga. Að meðaltali voru starfsdagar kennara 13,1 á síðastliðnu skólaári. Fjöldi starfsdaga var misjafn eftir skólum og var heildarfjöldi starfsdaga frá 5 til 21. Að meðaltali voru 4,9 starfsdagar teknir á starfstíma skóla og 8,2 dagar utan starfstíma skóla, svokallaðir skipulagsdagar að hausti og vori.

Vinnudagar grunnskólakennara voru að meðaltali 179 talsins með nemendum og 13 starfsdagar, eða 192 vinnudagar alls. Þetta er óbreyttur fjöldi frá síðastliðnu skólaári.

Tæplega fjórðungur nemenda nýtur stuðnings
Skólaárið 2007-2008 nutu 10.640 nemendur grunnskólans sérkennslu eða stuðnings, sem er 24,3% allra nemenda. Er það fækkun um 162 nemendur frá fyrra skólaári, sem er 1,5% fækkun. Hlutfallslega flestir nemendur 4. bekkjar (9 ára nemendur) nutu stuðnings eða 27,4 prósent af árganginum. Hlutfallslega fæstir 10. bekkjar nemendur njóta stuðnings, 18,5% nemenda. Af þeim nemendum sem njóta stuðnings eru 62,2% drengir og 37,8% stúlkur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.