Samanlögð auglýsingakaup í innlendum og erlendum miðlum námu 30,5 milljörðum króna árið 2025. Ríflega helftin (52%) af heildarupphæðinni rann til erlendra miðla. Hlutur erlendra miðla í auglýsingagreiðslum hefur aldrei verið meiri. Frá árinu 2009 hafa samanlögð auglýsingakaup meira en tvöfaldast, reiknað á föstu verðlagi. Aukninguna er svo til alfarið að rekja til greiðslna til erlendra miðla sem hafa nær 27-faldast á sama tíma og greiðslur til innlendra miðla hafa aðeins aukist 5% að raunvirði. Árið 2025 voru auglýsingkaup í erlendum miðlum um 1.500 milljónir króna meiri en kaup í innlendum miðlum.
Myndin að neðan sýnir hlutfallslega skiptingu auglýsingakaupa í innlendum og erlendum miðlum frá árinu 2009 eða svo langt aftur sem upplýsingar um greiðslur til erlendra miðla eru tiltækar.
Á síðasta ári jukust greiðslur til auglýsingakaupa í innlendum og erlendum miðlum um 1.041 milljón króna, sem samsvarar um 3,5% aukningar á nafnvirði frá 2024, en hálfu prósenti á raunvirði. Nær alla aukninguna er að rekja til greiðslna til erlendra miðla, sem jukust um 1.022 milljónir króna á nafnvirði. Greiðslur til innlendra miðla hækkuðu milli ára um 20 milljónir króna. Frá heimsfaraldri COVID-19, sem leiddi til umtalsverðar samdráttar á auglýsingamarkaði árið 2020, og til loka síðasta árs, hefur auglýsingamarkaðurinn vaxið að raunviðri um 39%, þar af hefur hlutfallsleg aukning á greiðslum til erlendra miðla aukist um 85% en innlendra aðeins um 9%.
Til samanburðar óx auglýsingamarkaðurinn á Norðurlöndum, að Íslandi undanskildu, á síðasta ári um tæpa 4%, reiknað á föstu verði og að teknu tilliti til gengismunar (IMR, The Nordic Advertising Market). Í Evrópu er áætlað að auglýsingamarkaðurinn hafi vaxið um 6% milli áranna 2024–2025 og á heimsvísu um allt að níu 9% (WARC).
Stór hluti greiðslna rennur til Alphabet og Meta
Obbi þeirrar upphæðar sem varið er til kaupa á auglýsingum í erlendum miðlum er vegna auglýsinga á vef, á samfélagsmiðlum og leitarsíðum. Upplýsingar um skiptingu greiðslna til einstakra aðila eru ekki tiltækar. Þó má gera ráð fyrir að verulegur hluti þess fjár sem íslenskir auglýsendur verja til auglýsingakaupa í erlendum miðlum renni til tveggja aðila, Alphabet (Google og Youtube) og Meta (Facebook, Instagram, Messenger, Threads og WhatsApp).
Samanlagður hlutur þessara tveggja aðila nam á síðasta ári 95% af greiðslum vegna birtingar auglýsinga sem inntar eru af hendi með greiðslukortaviðskiptum eingöngu. Hlutdeild þeirra í samanlögðum þjónustuviðskiptum eru ekki kunnar. Til frekara marks um samþjöppun auglýsingakaupa í erlendum miðlum var hlutdeild þriðja stærsta aðilans, Microsoft (Bing, Copilot, Edge, LinkedIn og MSN), innan við eitt prósent. Greiðslukortagreiðslur taka til um helmings af heildarþjónustuinnflutningi vegna auglýsinga og skyldrar starfsemi. Á heimsvísu (að Kína undanskildu) er áætlað að þrír aðilar, Amazon, Alphabet og Meta, fái samanlagt 56% auglýsingafjárins (WARC).
Rétt er að undirstrika að aðeins hluti þess fjár sem rennur til erlendra miðla er vegna kaupa á auglýsingum sem beint er að íslenskum neytendum. Útstreymi auglýsingafjár er því ekki nema að hluta á kostnað innlendra miðla. Leiða má líkur að því að auglýsingakaup í erlendum miðlum stafi af tveimur samtengdum ástæðum öðrum fremur. Tilurð og hröð útbreiðsla samfélagsmiðla hefur stuðlað að bættri nýtingu auglýsingafjárins með því að ná til fleiri og betur skilgreindra hópa neytenda heldur en hefðbundnir miðlar gera. Einnig verður útflæði auglýsingafjárins að nokkru rakið til markaðssetningar ferðaþjónustunnar erlendis. Óvíst er hver skiptingin er á milli greiðslna fyrir auglýsingar í erlendum miðlum eftir skírskotun þeirra til innlends og erlends uppruna neytenda.
Svipuð skipting auglýsingafjár hér og á Norðurlöndunum
Skipting auglýsingafjárins á milli innlendra og erlendra miðla er með svipuðu móti hér og á Norðurlöndum (sjá myndina að neðan). Á undanförnum árum hefur hlutdeild erlendra miðla aukist nær jafnt og þétt á öllum Norðurlandanna. Á síðasta ári er áætlað að í Finnlandi hafi 51% auglýsingafjárins runnið úr landi, eða einu prósentustigi hærra en hér á landi. Hlutfall auglýsingakaupa í erlendum miðlum árið 2025 var lægst í Noregi (47%), en hæst í Svíþjóð (57%) og næst hæst í Danmörku (56%). Til samanburðar er áætlað að 56% auglýsingakaupa á heimsvísu (að Kína undanskildu) hafi fallið í skaut erlendra miðla.
Auglýsingatekjur innlendra miðla drógust saman að raunvirði
Árið 2025 voru keyptar auglýsingar í innlendum miðlum fyrir 14,5 milljarða króna. Það er samdráttur frá fyrra ári um tæp 3%, eða um 416 milljónir króna, reiknað á föstu verðlagi. Sé litið lengra aftur voru tekjur íslenskra miðla af auglýsingum fjórðungi minni árið 2025 en 2016 þegar þær voru hæstar að raunvirði frá hruni fjármálakerfisins haustið 2008. Á sama tíma hafa greiðslur fyrir auglýsingakaup í erlendum miðlum meira en tvöfaldast. Á myndinni er yfirlit yfir þróun auglýsingatekna innlendra miðla á árabilinu 2009–2025 sýnd sem vísitala á breytilegu og föstu verðlagi.
Árið 2025 runnu ríflega sex af hverjum tíu krónum auglýsingafjár til innlendra miðla til þriggja fjölmiðla, þ.e. til sjónvarps (23%), vefmiðla (22%) og hljóðvarps (17%). Í humátt fylgdu umhverfisauglýsingar með 16% hlut. Á fáeinum árum hefur hlaðvarp orðið gildandi á auglýsingamarkaði með 4% hlutdeild á síðasta ári, það var sama hlutfall og tímarit og blöð útgefin sjaldnar en vikulega. Hlutur dag- og vikublaða, sem sögulega hafa verið mikilvægustu auglýsingamiðlarnir, var 13%, samanborið við yfir helmings hlutdeild (53%) árið 2009. Það samsvarar um 31 prósentustiga lækkun. Hlutur annarra miðla (kvikmyndahús og hljóðbækur) í auglýsingatekjum var snöggtum minni.
Auglýsingatekjur að stærstum hluta hjá fáum rekstraraðilum
Á síðasta ári höfðu 15 rekstraraðilar yfir 100 milljónir króna í auglýsingatekjur hver og einn þeirra. Samanlögð hlutdeild þeirra af auglýsingatekjum innlendra miðla nam 12,8 milljörðum króna af 14,5 milljörðum, sem samsvarar nærfellt níu af hverjum tíu krónum af auglýsingafé ársins. Í hlut fimm aðila runnu þrír fjórðu hlutar af heildarupphæðinni sem varið var til auglýsingakaupa innanlands.
Um gögnin
Upplýsingar um auglýsingatekjur fjölmiðla eru fengnar úr ársreikningum og samkvæmt upplýsingum rekstraraðila til Fjölmiðlanefndar. Í þeim tilfellum þegar upplýsingar frá rekstraaðilum skortir eru auglýsingatekjur áætlaðar út frá virðisaukaskatti. Hafa verður hugfast að tölur Hagstofunnar um auglýsingatekjur eru að nokkru áætlaðar. Upplýsingar um auglýsingatekjur taka ekki til vörulista og skráa, mark- og fjölpósts og beinnar markaðssetningar. Tekjur af kostun eru innifaldar í auglýsingatekjum. Áður birtar upplýsingar eru endurskoðaðar með aðgengi að nýjum og áður ókunnum upplýsingum.
Upplýsingar um greiðslur vegna birtingar auglýsinga í erlendum miðlum og skyldrar starfsemi eru dregnar úr upplýsingum um þjónustuinnflutning og úr greiðslukortagrunni. Verðlagsbreytingar eru reiknaðar út frá árlegu meðaltali vísitölu neysluverðs án húsnæðisliðar.