FRÉTT MIÐLUN 24. JÚNÍ 2010

Árið 2008 voru útgefin hér á landi 219 hljóðrit með tónlist, eða einu færra en árið áður. Undanfarin ár hefur útgefnum hljóðritum með flutningi tónlistar lítillega fækkað frá því að fjöldi útgáfa var hæstur árið 2005, eða 251 að tölu. Með tilkomu geisladiskanna undir lok níunda áratugar síðustu aldar hljóp verulegur vöxtur í útgáfu hljóðrita. Á árinu 1995 voru ríflega tvöfalt fleiri hljóðrit gefin út hér á landi miðað við árið 1990. Hin síðari ár hefur árleg útgáfa að mestu staðið í stað. Frá því um miðjan síðasta ártug hefur útgáfa á hverja 1,000 íbúa haldist nær stöðug, eða á bilinu 0,7–0,8 hljóðrit á hverja 1.000 íbúa (sjá myndir 1 og 2).

 


 

Árið 2008 skiptist hljóðritaútgáfan eftir efni þannig að þrjú af hverjum fjórum hljóðritum innihéldu dægurtónlist af ýmsu tagi (sjá mynd 3). Samanlögð útgáfa sígildrar tónlistar og ljóða- og kórsöngs nam 15 af hundraði. Útgáfa annarrar tónlistar var mun umfangsminni. Hlutfallsleg skipting milli tónlistartegunda hefur verið svipuð um árabil.

 

Tölur um útgáfu tónlistar á hljóðritum eru fengnar úr Íslenskri útgáfuskrá sem Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn annast og tekur saman. Skráin er uppfærð reglulega og í henni birtist það efni sem til hefur náðst og skráð er í bókasafnskerfinu Gegni. Niðurstöður talningar úr grunninum eru því ekki samhljóða frá einum tíma til annars. Hér er miðað við stöðu skráningar þann 14. júní 2010.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.