FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. JANÚAR 2019

Samkvæmt bráðabirgðatölum var afli íslenskra skipa árið 2018 rúm 1.259 þúsund tonn sem er 82 þúsund tonnum meiri afli en landað var árið 2017. Aukið aflamagn á milli ára má rekja til meiri botnfisks- og kolmunnaafla. Tæp 293 þúsund tonn veiddust af kolmunna samanborið við 229 þúsund tonn árið 2017. Botnfiskafli nam tæpum 481 þúsund tonnum á síðasta ári sem er 12% meira en árið 2017. Tæp 275 þúsund tonn veiddust af þorski á síðasta ári sem er 9% aukning frá árinu 2017. Flatfiskaflinn jókst um 24% milli ára og var rúmlega 27 þúsund tonn á síðasta ári. Afli skel- og krabbadýra jókst um 20%, úr 10,4 þúsund tonnum árið 2017 í 12,5 þúsund tonn árið 2018.

Í desember 2018 var fiskaflinn tæp 57 þúsund tonn sem er 19% samdráttur miðað við desember 2017. Þorskafli í desember var 15% minni en árið áður auk þess sem uppsjávarafli dróst saman um 23%. Aflinn í desember metinn á föstu verði var 16,5% minni en í desember 2017.

Fiskafli
Desember Janúar-desember
  2017 2018 % 2017 2018 %
Fiskafli á föstu verði
Vísitala6554-16,5 87 81 -8
Fiskafli í tonnum
Heildarafli 70.213 56.709 -19 1.176.889 1.259.081 13
Botnfiskafli 32.271 27.288 -15 428.967 480.660 12
Þorskur 20.024 17.408 -13 252.755 274.909 9
Ýsa 2.960 3.714 25 36.194 48.661 34
Ufsi 3.973 3.674 -8 49.349 66.273 34
Karfi 3.391 1.630 -52 58.550 58.077 -1
Annar botnfiskafli 1.924 861 -55 32.119 32.740 2
Flatfiskafli 961 829 -14 21.927 27.150 24
Uppsjávarafli 36.601 28.228 -23 715.539 738.738 3
Síld 5.186 4.708 -9 124.270 123.893 0
Loðna 0 0 - 196.832 186.333 -5
Kolmunni 31.415 23.520 -25 228.927 292.952 28
Makríll 0 0 - 165.510 135.560 -18
Annar uppsjávarfiskur 0 0 -100 0 0 -92
Skel-og krabbadýraafli 379 365 -4 10.422 12.524 20
Annar afli 0 0 - 35 9 -73

Talnefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.