FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. MAÍ 2023

Afli í apríl 2023 var rúm 126 þúsund tonn sem er 11% meiri afli en í apríl 2022. Botnfiskafli var tæplega 35 þúsund tonn og dróst saman um 24%. Af botnfisktegundum var þorskaflinn tæp 18 þúsund tonn. Uppsjávarafli sem var nær eingöngu kolmunni nam ríflega 88 þúsund tonnum í apríl sem er 36% meiri afli en í apríl 2022.

Afli á 12 mánaða tímabilinu maí 2022 til apríl 2023 var 1.382 þúsund tonn sem er 7% minna en landaður afli á fyrra 12 mánaða tímabili.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur og byggjast á upplýsingum frá Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.