FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. FEBRÚAR 2023

Landaður afli í janúar 2023 var 110,3 þúsund tonn en var 220 þúsund tonn í janúar á síðasta ári.

Af botnfiski var mestu landað af þorski eða tæplega 20 þúsund tonnum. Þá veiddust 5.446 tonn af ýsu og 3.265 tonn af ufsa. Uppsjávaraflinn var að mestu kolmunni, 72 þúsund tonn, en litlu var landað af loðnu og síld.

Á 12 mánaða tímabilinu febrúar 2022 til janúar 2023 veiddust rúm 1,3 milljónir tonna sem er nokkurn vegin sama magn og landað var á sama tímabili ári fyrr.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.