Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 152,2 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2012, samanborið við 143,6 milljarða á sama tímabili árið 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 8,6 milljarða eða 6,0% á milli ára.
Aflaverðmæti botnfisks var 89,7 milljarðar sem er 2,6% aukning frá sama tíma árið 2011 þegar aflaverðmætið nam 87,4 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 45,9 milljarðar sem er 8,6% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu, sem nam 11,5 milljörðum, jókst um 5,3% milli ára en verðmæti karfaaflans, sem nam 13,3 milljörðum, var u.þ.b. það sama og á tímabilinu janúar-nóvember árið 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 6,3% milli ára og nam 8,8 milljörðum króna í janúar til nóvember 2012.
Verðmæti uppsjávarafla nam um 46,3 milljörðum króna í janúar til nóvember 2012, sem er 9,0% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti loðnu nam 13,2 milljörðum sem er 48,9% aukning samanborið við sama tímabil árið 2011 og verðmæti kolmunna, sem var 2,7 milljarðar á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2012, jókst um rúmlega 2,4 milljarða milli ára. Aflaverðmæti síldar nam 14,4 milljörðum króna í janúar til nóvember 2012 sem er 5,6% aukning milli ára. Hins vegar dróst aflaverðmæti makríls saman um 19,1% frá fyrra ári og var um 14,4 milljarðar. Nær enginn annar uppsjávarafli var veiddur á fyrstu 11 mánuðum ársins 2012. Aflaverðmæti flatfisksafla nam um 9,7 milljörðum króna, sem er 3,5% aukning frá janúar til nóvember 2011.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 71,5 milljörðum króna og jókst um 17,1% miðað við fyrstu ellefu mánuði ársins 2011. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 9,3% milli ára og nam 19,7 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 54,8 milljörðum í janúar til nóvember og dróst saman um 4,5% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 5,2 milljörðum króna, sem er 16,0% samdráttur frá árinu 2011.
Verðmæti afla janúar-nóvember 2012 | ||||||
Milljónir króna | Nóvember | Janúar–nóvember | Breyting frá | |||
2011 | 2012 | 2011 | 2012 | fyrra ári, % | ||
Verðmæti alls | 15.930 | 13.812 | 143.577 | 152.170 | 6,0 | |
Botnfiskur | 10.779 | 8.334 | 87.440 | 89.712 | 2,6 | |
Þorskur | 5.441 | 4.292 | 42.288 | 45.922 | 8,6 | |
Ýsa | 1.343 | 1.089 | 10.908 | 11.484 | 5,3 | |
Ufsi | 992 | 851 | 8.300 | 8.824 | 6,3 | |
Karfi | 2.050 | 1.343 | 13.289 | 13.292 | 0,0 | |
Úthafskarfi | 0 | 0 | 4.028 | 1.979 | -50,9 | |
Annar botnfiskur | 953 | 759 | 8.627 | 8.211 | -4,8 | |
Flatfisksafli | 852 | 443 | 9.362 | 9.688 | 3,5 | |
Uppsjávarafli | 4.059 | 3.737 | 42.425 | 46.253 | 9,0 | |
Síld | 3.905 | 3.619 | 13.641 | 14.410 | 5,6 | |
Loðna | 153 | 112 | 8.885 | 13.230 | 48,9 | |
Kolmunni | 1 | 5 | 257 | 2.710 | 952,7 | |
Annar uppsjávarafli | 0 | 0 | 19.642 | 15.903 | -19,0 | |
Skel- og krabbadýraafli | 237 | 1.296 | 2.877 | 5.238 | 82,0 | |
Rækja | 155 | 1.238 | 1.842 | 4.146 | 125,1 | |
Annar skel- og krabbad.afli | 82 | 58 | 1.035 | 1.092 | 5,4 | |
Annar afli | 3 | 2 | 1.474 | 1.280 | -13,2 |
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-nóvember 2012 | ||||||
Milljónir króna | Nóvember | Janúar–Nóvember | Breyting frá | |||
2011 | 2012 | 2011 | 2012 | fyrra ári, % | ||
Verðmæti alls | 15.930 | 13.812 | 143.577 | 152.170 | 6,0 | |
Til vinnslu innanlands | 6.138 | 6.631 | 61.033 | 71.480 | 17,1 | |
Í gáma til útflutnings | 537 | 533 | 6.144 | 5.162 | -16,0 | |
Landað erlendis í bræðslu | 0 | 0 | 145 | 125 | -14,3 | |
Sjófryst | 7.744 | 5.043 | 57.387 | 54.780 | -4,5 | |
Á markað til vinnslu innanlands | 1.449 | 1.525 | 18.036 | 19.711 | 9,3 | |
Sjófryst til endurvinnslu innanl. | 27 | 27 | 169 | 367 | 117,4 | |
Selt úr skipi erlendis | 0 | 0 | 0 | 0 | – | |
Fiskeldi | 0 | 0 | 0 | 0 | – | |
Aðrar löndunartegundir | 34 | 53 | 663 | 545 | -17,8 |
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-nóvember 2012 | ||||||
Milljónir króna | Nóvember | Janúar–nóvember | Breyting frá | |||
2011 | 2012 | 2011 | 2012 | fyrra ári, % | ||
Verðmæti alls | 15.930 | 13.812 | 143.577 | 152.170 | 6,0 | |
Höfuðborgarsvæði | 3.874 | 2.976 | 28.207 | 34.465 | 22,2 | |
Suðurnes | 2.708 | 2.281 | 24.071 | 24.594 | 2,2 | |
Vesturland | 562 | 440 | 6.530 | 7.242 | 10,9 | |
Vestfirðir | 965 | 1.828 | 7.445 | 9.544 | 28,2 | |
Norðurland vestra | 1.184 | 833 | 9.509 | 10.120 | 6,4 | |
Norðurland eystra | 2.180 | 1.277 | 23.238 | 17.278 | -25,6 | |
Austurland | 1.891 | 1.886 | 20.110 | 23.683 | 17,8 | |
Suðurland | 2.028 | 1.711 | 18.179 | 19.611 | 7,9 | |
Útlönd | 537 | 579 | 6.289 | 5.633 | -10,4 |
Talnaefni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.