Aflaverðmæti í október 2024 var rétt tæplega 16 milljarðar króna sem er 10% samdráttur miðað við október 2023. Verðmæti botnfiskafla jókst um 3% á meðan verðmæti uppsjávarafla dróst saman um 46% þar sem engin loðna veiddist.
Á 12 mánaða tímabilinu frá desember 2023 til nóvember 2024 var aflaverðmætið rúmlega 168 milljarðar króna sem er 15% samdráttur frá fyrra 12 mánaða tímabili.
Yfirlit um aflaaverðmæti í nóvember 2024, sem gert var ráð fyrir að yrði birt í fréttinni, verður birt eftir mánuð.