Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 13,3 milljörðum króna í janúar 2013 samanborið við 12,6 milljarða í janúar 2012. Aflaverðmæti hefur því aukist um 696 milljónir eða 5,5% á milli ára.
Aflaverðmæti botnfisks jókst um 3,5% milli ára og var tæplega 7,7 milljarðar í janúar 2013. Verðmæti þorskafla var um 4,3 milljarðar sem er 3% hærra en í janúar 2012. Aflaverðmæti ýsu nam 1,2 milljarði og dróst saman um 13,5% en verðmæti karfaaflans nam 1,1 milljarði króna, sem er 23,4% aukning frá janúar 2012. Verðmæti ufsaaflans jókst um 8,8% milli ára og var 506 milljónir í janúar 2013.
Verðmæti uppsjávarafla nam tæplega 5 milljörðum króna í janúar 2013, sem er um 10,2% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist af 12,3% aukningu á verðmæti loðnu en nær enginn annar uppsjávarafli veiddist í janúar 2013. Aflaverðmæti flatfisksafla nam 551 milljónum, sem er 7,3% samdráttur frá janúar 2012.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 8 milljörðum króna í janúar 2013 líkt og árið áður. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 4,4% milli ára og var ríflega 1,7 milljarður í janúar 2013. Aflaverðmæti sjófrystingar nam rúmum 3 milljörðum í janúar 2013 sem er 35,3% aukning milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 420 milljónum króna, sem er 5,2% samdráttur frá janúar 2012.
Hagstofan hefur endurskoðað bráðabirgðatölur fiskafla ársins 2012. Heildarafli íslenskra skipa var 1.480.472 tonn og aflaverðmætið tæpir 161 milljarðar króna. Þar af var þorskafli 204.755 tonn að verðmæti 49,5 milljarðar króna, ýsuafli 47.768 tonn að verðmæti 12,2 milljarðar króna, síldaraflinn 192.260 tonn að verðmæti 14,6 milljarðar og makrílaflinn 151.943 tonn að verðmæti 14,4 milljarðar króna.
Upplýsingar um afla og aflaverðmæti janúarmánaðar 2013 ásamt endurskoðuðum tölum fyrir árið 2012 er að finna í talnaefni.
Verðmæti afla janúar 2013 | ||||
Milljónir króna | Janúar | Breyting frá | ||
2012 | 2013 | fyrra ári, % | ||
Verðmæti alls | 12.638 | 13.334 | 5,5 | |
Botnfiskur | 7.427 | 7.686 | 3,5 | |
Þorskur | 4.204 | 4.330 | 3,0 | |
Ýsa | 1.365 | 1.181 | -13,5 | |
Ufsi | 465 | 506 | 8,8 | |
Karfi | 915 | 1.129 | 23,4 | |
Úthafskarfi | 0 | 0 | 0,0 | |
Annar botnfiskur | 478 | 540 | 13,0 | |
Flatfisksafli | 594 | 551 | -7,3 | |
Uppsjávarafli | 4.521 | 4.984 | 10,2 | |
Síld | 6 | 18 | 205,7 | |
Loðna | 4.423 | 4.965 | 12,3 | |
Kolmunni | 93 | 1 | -98,5 | |
Annar uppsjávarafli | 0 | 0 | 0,0 | |
Skel- og krabbadýraafli | 94 | 111 | 18,2 | |
Rækja | 87 | 105 | 19,8 | |
Annar skel- og krabbad.afli | 7 | 6 | -3,7 | |
Annar afli | 2 | 2 | 6,1 |
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar 2013 | ||||
Milljónir króna | Janúar | Breyting frá | ||
2012 | 2013 | fyrra ári, % | ||
Verðmæti alls | 12.638 | 13.334 | 5,5 | |
Til vinnslu innanlands | 8.074 | 8.061 | -0,2 | |
Í gáma til útflutnings | 443 | 420 | -5,2 | |
Landað erlendis í bræðslu | 0 | 0 | 0,0 | |
Sjófryst | 2.261 | 3.059 | 35,3 | |
Á markað til vinnslu innanlands | 1.821 | 1.741 | -4,4 | |
Sjófryst til endurvinnslu innanl. | 0 | 0 | 0,0 | |
Selt úr skipi erlendis | 0 | 0 | – | |
Fiskeldi | 0 | 0 | – | |
Aðrar löndunartegundir | 38 | 53 | 40,4 |
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar 2013 | ||||
Milljónir króna | Janúar | Breyting frá | ||
2012 | 2013 | fyrra ári, % | ||
Verðmæti alls | 12.638 | 13.334 | 5,5 | |
Höfuðborgarsvæði | 1.699 | 2.216 | 30,4 | |
Suðurnes | 2.114 | 2.158 | 2,1 | |
Vesturland | 754 | 551 | -26,9 | |
Vestfirðir | 761 | 812 | 6,8 | |
Norðurland vestra | 627 | 568 | -9,4 | |
Norðurland eystra | 1.690 | 1.825 | 8,0 | |
Austurland | 3.265 | 3.490 | 6,9 | |
Suðurland | 1.285 | 1.275 | -0,8 | |
Útlönd | 443 | 440 | -0,8 |