Út er komið ritið Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2006. Í ritinu kemur m.a. fram að á árinu 2006 var afli íslenskra skipa tæp 1.323 þúsund tonn, 346 þúsund tonnum minni, en árið 2005. Aflaverðmæti var rúmir 76 milljarðar króna og jókst um 12,1% frá fyrra ári. Mest var unnið úr fiskaflanum á Austurlandi, enda var mesta magninu landað þar. Uppistaða aflans þar var uppsjávarfiskur. Aflakaupendur á höfuðborgarsvæðinu keyptu afla að andvirði 15,7 milljarðar króna og fór stærsti hluti botnfiskaflans í vinnslu þar, tæplega fjórðungur. Af þorskaflanum fór mest í salt en stærstur hluti ýsuaflans var frystur í landi.
Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2006 - útgáfa
Talnaefni:
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.