Út er komið ritið Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2007. Í ritinu kemur m.a. fram að á árinu 2007 var afli íslenskra skipa tæp 1.396 þúsund tonn, 73 þúsund tonnum meiri en árið 2006. Aflaverðmæti var rúmir 80 milljarðar króna og jókst um 5,4% frá fyrra ári. Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, enda er stórum hluta uppsjávaraflans landað þar. Aflakaupendur á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu keyptu mestan afla, að andvirði um 14,5 milljarða hvor. Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum eða rúm 40%. Af þorskaflanum fór mest í salt en stærstur hluti ýsuaflans var frystur í landi.
Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2007 - Hagtíðindi
Talnaefni