FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 10. OKTÓBER 2014

Út er komið ritið Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2013.

Í ritinu kemur m.a. fram að árið 2013 var afli íslenskra skipa tæp 1.363 þúsund tonn, 86 þúsund tonnum minni en árið 2012. Aflaverðmæti nam tæpum 153 milljörðum króna og dróst saman um 4,1% frá fyrra ári, eða um 2,2% ef mælt er á föstu verði. Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, að megninu til uppsjávarafli sem þar var landað. Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu eða 29,4% og á Suðurnesjum, 19,5%. Verðmæti aukaafurða sem féllu til við vinnslu fiskaflans nam tæpum 5 milljörðum króna á árinu 2013 og jókst um 9,6% frá árinu áður. Verðmæti aukaafurða telst ekki með inni í heildaraflaverðmæti. Varðandi útflutning sjávarafurða kemur fram að mestur útflutningur var til Bretlands eða um 16,3% af útflutningsverðmæti. Útflutningur til N-Ameríku jókst um 15,6% á milli ára. Útflutningsframleiðsla sjávarafurða jókst um 2,2% frá árinu 2012.

Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2013 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.