FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. JANÚAR 2007

Heimsaflinn var 95 milljónir tonna árið 2004 og jókst um 4,8 milljónir frá árinu 2003. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2004 en Íslendingar voru í 13. sæti heimslistans, í öðru sæti fiskveiðiþjóða á Norðaustur-Atlantshafi og í 11. sæti veiðiþjóða á Norðvestur-Atlantshafi.

Út er komið ritið Afli erlendra ríkja við Ísland 2004 og 2005 og heimsaflinn 2004. Í ritinu kemur m.a. fram að afli erlendra ríkja við Ísland nam tæpum 74 þúsund tonnum 2004 og jókst í 114 þúsund tonn 2005. Uppistaða aflans var sem fyrr loðna. Norðmenn veiddu mest erlendra þjóða hér við land 2005 en Færeyingar árið 2004.

Afli erlendra ríkja við Ísland 2004 og 2005 og heimsaflinn 2004 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.