FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 18. DESEMBER 2008

Út er komið ritið Afli erlendra ríkja við Ísland 2007 og heimsafli 2006. Í ritinu kemur meðal annars fram að afli erlendra ríkja við Ísland var tæp 80 þúsund tonn árið 2007 miðað við rúm 54 þúsund tonn 2006. Nær eingöngu Færeyingar og Norðmenn stunduðu veiðar hér við land á síðasta ári og uppistaðan í aflanum var loðna og kolmunni.

Heimsaflinn var 92 milljónir tonna árið 2006 og minnkaði um 2,2 milljónir tonna frá árinu 2005. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2006 en Íslendingar voru í 16. sæti heimslistans.

Afli erlendra ríkja við Ísland 2007 og heimsaflinn 2006 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.