FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 21. DESEMBER 2005

Út er komið ritið Afli erlendra ríkja við Ísland og heimsaflinn 2003. 

Í ritinu kemur m.a. fram að afli erlendra ríkja við Ísland nam 69 þúsund tonnum á árinu 2003 sem er mikill samdráttur frá árinu 2002 er hann var 160 þúsund tonn. Uppistaða aflans var sem fyrr loðna. Færeyingar voru sú þjóð sem veiddu mest erlendra þjóða hér við land árið 2003.

Heimsaflinn var 90,2 milljónir tonna árið 2003 og dróst saman um 2,8 milljónir frá árinu 2002. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2003 en Íslendingar voru í 12. sæti heimslistans, í öðru sæti fiskveiðiþjóða á Norðaustur-Atlantshafi og í 11. sæti veiðiþjóða á Norðvestur-Atlantshafi.

Afli erlendra ríkja við Ísland og heimsaflinn 2003 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.