FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. JÚNÍ 2025

Landaður afli nam rúmum 68 þúsund tonnum í maí 2025 sem er 22% minna en í maí 2024. Botnfiskafli var rúm 42 þúsund tonn og dróst saman um 7%, þar af fór þorskafli úr 22,2 þúsund tonnum í 21,7 þúsund tonn. Uppsjávaraflinn var nær allur kolmunni, 22 þúsund tonn.

Á tólf mánaða tímabili, frá júní 2024 til maí 2025, var landað rúmlega 954 þúsund tonnum sem er 12% minni afli en á sama tímabili ári fyrr.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.