FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. SEPTEMBER 2007

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum ágústmánuði var 12% meiri en í ágúst 2006, sé hann metinn á föstu verði. Það sem af er árinu hefur fiskaflinn aukist  um 2,2% á föstu verði miðað við sama tímabil 2006.  

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 89.096 tonnum í ágúst 2007 samanborið við 89.566 tonn í ágúst 2006.

Botnfiskafli dróst saman um tæp  600 tonn frá ágústmánuði 2006 og nam tæpum 37.000 tonnum. Þorskafli dróst saman um rúm 1.000 tonn, ýsuaflinn jókst um tæp 3.200 tonn og ufsaaflinn dróst saman um tæplega 2.200 tonn.

Flatfiskaflinn jókst um rúmlega 400 tonn milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 49.700 tonnum og var að stærstum hluta síld, makríll og kolmunni. Uppsjávarafli dróst saman um tæplega 600 tonn miðað við ágúst 2006.  Skel- og krabbadýraafli var tæplega 500 tonn samanborið við rúmlega 200 tonna afla í ágúst 2006.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.



Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.