Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum ágústmánuði, metinn á föstu verði, var 1,6% minni en í ágúst 2011. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 15,8% miðað við sama tímabil 2011, sé hann metinn á föstu verði.
Afli í tonnum
Aflinn nam alls 100.401 tonni í ágúst 2012 samanborið við 109.814 tonn í ágúst 2011.
Botnfiskafli dróst saman um tæp 2.600 tonn frá ágúst 2011 og nam 21.400 tonnum. Þar af var þorskaflinn tæp 9.700 tonn, sem er 115 tonnum meiri afli en á fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 1.900 tonnum sem er tæplega 1.700 tonnum minni afli en í ágúst 2011. Karfaaflinn dróst saman um rúm 1.300 tonn samanborið við ágúst 2011 og nam rúmum 2.300 tonnum. Tæp 5.400 tonn veiddust af ufsa sem er um 1.200 tonna aukning frá ágúst 2011. Annar botnfisksafli nam um 2.100 tonnum og dróst saman um 918 tonn frá fyrra ári.
Afli uppsjávartegunda nam tæpum 76.600 tonnum, en 83.300 tonn af uppsjávarafla veiddist í ágúst 2011. Rúmum 54.700 tonnum var landað af makríl í ágústmánuði, samanborið við 58.900 tonn í ágúst 2011. Um 19.800 tonn veiddust af síld sem er samdráttur frá fyrra ári um 4.000 tonn.
Flatfiskaflinn var tæp 1.100 tonn í ágúst 2012 sem er aukning um 50 tonn frá sama mánuði árið áður. Skel- og krabbadýraafli nam tæpum 1.200 tonnum sem er aukning um 144 tonn frá ágúst 2011.
Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2010. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.
Talnaefni