FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. MAÍ 2008


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í apríl, metinn á föstu verði, var 10,7% meiri en í apríl 2007. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 5,5% miðað við sama tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 128.056 tonnum í apríl 2008 samanborið við 122.368 tonn í apríl 2007.

Botnfiskafli dróst saman um 540 tonn frá apríl 2007 og nam rúmum 49.100 tonnum. Þorskafli dróst saman um tæp 700 tonn, ufsaafli dróst saman um rúm 2.000 tonn og karfaafli um rúm 1.200 tonn. Ýsuafli jókst hins vegar um rúm 2.200 tonn frá apríl 2007.

Afli uppsjávartegunda samanstóð alfarið af kolmunna og veiddust 74.664 tonn af honum, samanborið við 69.857 tonn í apríl 2007.
Flatfiskaflinn var 2.130 tonn í apríl og jókst um rúm 460 tonn. Skel- og krabbadýraafli nam 1.465 tonnum samanborið við 1.194 tonna afla í apríl 2007.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.