FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. MAÍ 2026

Landaður afli í apríl 2026 var rúm 123 þúsund tonn, 12% minni en í apríl 2025. Botnfiskafli var 37 þúsund tonn sem er 12% minni afli en í apríl 2025. Uppsjávarafli, sem líkt og í fyrra var nær eingöngu kolmunni, var tæp 84 þúsund tonn, 12% minni afli en í apríl 2025.

Á 12 mánaða tímabili, frá maí 2025 til apríl 2026, var landað rúmlega 1.125 þúsund tonnum sem er 15% meiri afli en á sama tímabili ári fyrr. Aukning var í afla uppsjávartegunda um 34% og vegur loðna þungt í þeirri aukningu. Botnfiskafli dróst hins vegar saman um 6% á milli tímabila og samdráttur var einnig í flatfiskafla um 8%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.