FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. JANÚAR 2009


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í desember, metinn á föstu verði, var 10,0% meiri en í desember 2007. Árið 2008 dróst fiskaflinn saman um 2,6% miðað við árið 2007, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 85.774 tonnum í desember 2008 samanborið við 78.329 tonn í desember 2007.

Botnfiskafli jókst um 7.600 tonn frá desember 2007 og nam tæpum 33.300 tonnum. Karfaaflinn jókst um rúm 3.700 tonn, ufsaaflinn um rúm 3.000 tonn og afli þorsks um tæp 1.300 tonn miðað við desember 2007. Ýsuaflinn dróst hinsvegar saman um tæp 2.400 tonn samanborið við desember 2007.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 50.300 tonnum og var nær eingöngu síld. Uppsjávarafli stóð nokkurn veginn í stað miðað við desember 2007. Flatfiskaflinn var rúm 2.000 tonn í desember og jókst um rúm 600 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 50 tonnum og dróst saman um 82 tonn miðað við desember 2007.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.