FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 13. MARS 2009

 

Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði, metinn á föstu verði, var 27% meiri en í febrúar 2008.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 99.648 tonnum í febrúar 2009 samanborið við 85.808 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli jókst um tæp 1.900 tonn frá febrúar 2008 og nam 43.100 tonnum. Þorskafli jókst um rúm 3.000 tonn og karfaaflinn um rúm 2.300 tonn. Ýsuaflinn dróst hins vegar saman um 3.200 tonn og ufsaaflinn um 2.000 tonn samanborið við febrúar 2008.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 54.000 tonnum sem er um 11.100 tonnum meiri afli en í febrúar 2008. Aukningu í uppsjávarafla má rekja til þess að þrátt fyrir um helmingi minni loðnuveiði en árið áður og um 11.000 tonnum minni afla af kolmunna, þá veiddust í nýliðnum febrúarmánuði 28.000 tonn af gulldeplu. Síldarafli nam einnig um 10.200 tonn, en engin síld var veidd í febrúar 2008. Flatfiskaflinn var rúm 2.000 tonn í febrúar og jókst um rúmlega 700 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli  var 61 tonn samanborið við 46 tonna afla í febrúar 2008.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.