FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. FEBRÚAR 2007


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum janúarmánuði, metinn á föstu verði, var 10% meiri en í janúar 2006.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 80.657 tonnum í janúar 2007 samanborið við 41.538 tonn í janúar 2006.

Botnfiskafli jókst um tæp 2.600 tonn frá janúarmánuði 2006 og nam  33.200 tonnum. Þorskafli dróst saman um tæp 150 tonn, ýsuaflinn jókst um rúm 670 tonn og ufsaaflinn jókst um rúmlega 520 tonn.

Flatfiskaflinn dróst saman og var tæplega 800 tonn. Afli uppsjávartegunda nam rúmum 37.300 tonnum og var að stórum hluta  loðnuafli. Aukning uppsjávarafla nemur rúmum 28.200 tonnum. Skel- og krabbadýraafli  var 151 tonn samanborið við 51 tonna afla í janúar 2005.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.