FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. ÁGÚST 2005

Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum júlímánuði var ríflega 86.700 tonn sem er tæplega 85.000 tonnum minni afli en í júlímánuði 2004 en þá bárust á land yfir 171.700 tonn. Milli júlímánaða 2004 og 2005 dróst verðmæti fiskaflans, á föstu verði ársins 2003, saman um 25,7%. Það sem af er árinu 2005 hefur verðmæti fiskaflans, á föstu verðlagi ársins 2003, dregist saman um 1,3% miðað við árið 2004.

Botnfiskafli var rúm 30.400 tonn samanborið við 38.000 tonn í júlímánuði 2004 og dróst því saman um 7.600 tonn á milli ára. Þorskafli var 8.800 tonn en 11.400 tonn veiddust í júlí 2004 og hefur aflinn því minnkað um 2.600 tonn. Af ýsu bárust á land tæp 4.500 tonn en í fyrra nam aflinn 3.800 tonnum og jókst því um rúm 600 tonn. Úthafskarfaaflinn var 4.200 tonn í ár en yfir 13.700 tonn í fyrra og er það samdráttur um 9.500 tonn frá júlímánuði 2004.

Afli uppsjávartegunda var 51.600 tonn í júlímánuði 2005 en nam 125.200 tonnum á sama tíma í fyrra. Samdráttur varð í öllum tegundum nema síld sem jókst um 13.900 tonn en kolmunnaaflinn minnkaði um 58.000 tonn og engin loðna barst á land í júlí í ár miðað við 29.500 tonna afla í júlí 2004.

Skel- og krabbadýraafli var 1.800 tonn samanborið við 5.600 tonna afla í júlí 2004. Aflasamdráttur í rækju nam 2.600 tonnum og var aflinn 1.000 tonn í júlí 2005. Kúfiskveiði hófst í nýliðnum júlímánuði og nam aflinn tæpum 490 tonnum.

Heildarafli íslenskra skipa það sem af er árinu 2005 nemur 1.252.000 tonnum og er það 24.300 tonna meiri afli en á sama tímabili ársins 2004. Botnfiskafli var 300.500 tonn sem er tæpum 8.000 tonnum meiri afli en í fyrra. Flatfiskafli er 1.700 tonnum minni en í fyrra, uppsjávarafli var 32.100 tonnum meiri en þar vegur m. a. 77.700 tonna aukning í loðnu á móti 49.500 tonna samdrætti í kolmunnaafla. Þá hefur skel- og krabbadýraafli dregist saman um 14.000 tonn. Munar þar mestu um 9.500 tonna samdrátt í rækjuafla og 5.200 tonna samdrátt í kúfiski þar sem kúfiskveiði er nýhafin í ár. Hins vegar varð aukning í humarafla milli ára um 500 tonn.

¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.