FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. ÁGÚST 2026

Landaður fiskafli í júlí 2026 var tæp 42 þúsund tonn, 51% minni en í júlí 2025. Botnfiskafli var 25 þúsund tonn sem er 2% minni afli en í júlí 2025. Uppsjávarafli var tæp 15 þúsund tonn, 74% minni afli en í júlí 2025.

Á 12 mánaða tímabili, frá ágúst 2025 til júlí 2026, var landað 1.062 þúsund tonnum sem er 8% meiri afli en á sama tímabili ári fyrr. Aukning var í afla uppsjávartegunda um 20% og vegur loðna ennþá mikið í þeirri aukningu. Botnfiskafli dróst hins vegar saman um 6% á milli tímabila og samdráttur var einnig í flatfiskafla um 13%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.