FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. JÚLÍ 2008


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í júní, metinn á föstu verði, var 28,3% minni en í júní 2007. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 9,4% miðað við sama tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 60.923 tonnum í júní 2008 samanborið við 112.141 tonn í júní 2007.

Botnfiskafli dróst saman um 14.600 tonn frá júní 2007 og nam rúmum 26.000 tonnum. Mestu munar um afla úthafskarfa sem dróst saman um tæp 7.600 tonn frá því í júní 2007. Einnig varð samdráttur í öðrum botnfisktegundum, þannig dróst þorskafli saman um tæp 3.500 tonn, ufsaafli um 1.550 tonn og ýsuafli um tæp 900 tonn.

Afli uppsjávartegunda var tæp 30.200 tonn og dróst saman um tæp 37.000 tonn frá júní 2007. Munar þar mestu að ekkert var veitt af kolmunna í júní 2008 samanborið við 34.500 tonna afla í júní 2007. Rúm 27.700 tonn veiddust af síld sem er samdráttur um tæp 5.000 tonn frá því í júní 2007. Flatfiskaflinn var tæp 2.400 tonn í júní sem er sambærilegt við fyrra ár. Skel- og krabbadýraafli jókst og nam 2.190 tonnum samanborið við rúmlega 1.960 tonna afla í júní 2007.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.