FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. JÚLÍ 2010


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júnímánuði, metinn á föstu verði, var 19,2% minni en í júní 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 13% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 84.941 tonni í júní 2010 samanborið við 129.036 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um rúm 5.300 tonn frá júní 2009 og nam 33.000 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 9.300 tonnum, sem er samdráttur um 3.000 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 4.000 tonnum, sem er um 700 tonnum minni afli en í júní 2009. Um 4.000 tonn veiddust af ufsa, sem er um 2.000 tonnum minni afli en í júní 2009. Karfaaflinn dróst saman um tæp 500 tonn og nam um 2.100 tonnum. Um 1.300 tonna aukning var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann tæpum 12.700 tonnum. Mest aukning var þar í veiði á úthafskarfa og blálöngu.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 47.300 tonnum, sem er um 38.000 tonnum minni afli en í júní 2009. Af uppsjávartegundum veiddust rúm 25.000 tonn af síld og rúm 22.000 tonn af makríl.

Flatfiskaflinn var tæp 3.000 tonn í júní 2010 samanborið við 3.700 tonn árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn stóð nokkurn veginn í stað milli ára og nam 1.300 tonnum.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2008. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.