FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. JÚLÍ 2022

Heildarafli í júní 2022 var 35.237 tonn sem er 14 þúsund tonnum minni afli en í júní á síðasta ári. Botnfiskafli var 31 þúsund tonn sem er 10% minna en í júní í fyrra. Af botnfisktegundum var þorskaflinn tæp 16 þúsund tonn (-20%). Af uppsjávartegundum veiddust 1.282 tonn samanborið við rúm 11 þúsund tonn í júní í fyrra.

Á tólf mánaða tímabili frá júlí 2021 til júní 2022 var heildaraflinn rúmlega 1,5 milljónir tonna, tæplega 40% meira en landað var á sama tímabili ári fyrr. Þar af var uppsjávarafli rúmlega ein milljón tonna og botnfiskafli 445 þúsund tonn.

Aflaverðmæti sjávarafurða á föstu verðlagi er ekki birt að sinni þar sem þeirri magnvísitölu er ætlað að meta áætlað verðmæti aflans í samanburði við fyrra ár. Við þessa útreikninga er stuðst við meðalverð fisktegunda frá síðasta fiskveiðiári. Örar verðhækkanir á fyrstu mánuðum ársins 2022 gera það að verkum að vísitalan gefur ekki rétta mynd af þróun aflaverðmætis og því er hún ekki birt.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.