FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. JÚNÍ 2007


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum maímánuði var 11% minni en í maí 2006 og það sem af er árinu hefur hann dregist saman um 3% miðað við sama tímabil 2006, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 142.064 tonnum í maí 2007 samanborið við 180.631 tonn í maí 2006.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 5.900 tonn frá maímánuði 2006 og nam tæpum 48.300 tonnum. Þorskafli dróst saman um tæplega 300 tonn, ýsuaflinn dróst saman um 1.700 tonn og ufsaaflinn jókst um rúmlega 1.000 tonn.

Flatfiskaflinn var nánast óbreyttur milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 88.100 tonnum og var að stærstum hluta kolmunni. Samdráttur í uppsjávarafla nemur rúmum 33.200 tonnum. Skel- og krabbadýraafli var tæplega 2.000 tonn samanborið við tæplega 1.500 tonna afla í maí 2006.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.