FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 13. JÚNÍ 2008

Heildarafli íslenskra skipa í maí, metinn á föstu verði, var 7,6% minni en í maí 2007. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 5,9% miðað við sama tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 98.373 tonnum í maí 2008 samanborið við 142.319 tonn í maí 2007.

Botnfiskafli dróst saman um 6.500 tonn frá maí 2007 og nam tæpum 42.100 tonnum. Þorskafli dróst saman um rúm 3.200 tonn, ufsaafli dróst saman um rúm 1.600 tonn og karfaafli um rúm 1.000 tonn.

Afli uppsjávartegunda var tæp 49.000 tonn og dróst saman um tæp 39.200 tonn frá maí 2007. Rúmlega 47.300 tonn veiddust af kolmunna sem er samdráttur um tæp 37.200 tonn frá maí 2007. Rúm 1.600 tonn veiddust af síld sem er samdráttur um tæp 2.000 tonn frá fyrra ári.
Flatfiskaflinn var 7.700 tonn í maí og jókst um 1000 tonn. Skel- og krabbadýraafli nam 2.190 tonnum samanborið við 1.975 tonna afla í maí 2007.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.