FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. JÚNÍ 2010


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum maímánuði, metinn á föstu verði, var 5,5% minni en í maí 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 11,7% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 73.569 tonnum í maí 2010 samanborið við 64.239 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli jókst um rúm 1.700 tonn frá maí 2009 og nam 38.800 tonnum. Þar af nam þorskaflinn tæpum 13.800 tonnum, sem er samdráttur um 1.000 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam 7.200 tonnum, sem er um 700 tonnum minni afli en í maí 2009. Um 4.000 tonn veiddust af ufsa, sem er um 1.000 tonnum minni afli en í maí 2009. Karfaaflinn stóð nokkurn vegin í stað milli ára og nam rúmum 2.400 tonnum. Um 4.600 tonna aukning var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann rúmum 11.300 tonnum. Mest aukning var þar í veiði á úthafskarfa og keilu.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 29.000 tonnum, sem er um 7.400 tonnum meiri afli en í maí 2009. Af uppsjávartegundum veiddust 26.700 tonn af kolmunna og rúm 2.000 tonn af síld.

Flatfiskaflinn var rúm 3.100 tonn í maí 2010 samanborið við 3.900 tonn árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn nam 1.690 tonnum samanborið við tæp 1.400 tonn í maí 2009 og annar afli nam rúmum 1.000 tonnum.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2008. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.