FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. APRÍL 2004

Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum marsmánuði var liðlega 264.400 tonn sem er um 79.300 tonnum meiri afli en í marsmánuði 2003 en þá veiddust nærri 185.200 tonn. Milli marsmánaða 2003 og 2004 jókst verðmæti fiskaflans, á föstu verði ársins 2002, um 18,6% og það sem af er árinu 2004 hefur það aukist um 7,3% miðað við árið 2003.
     Botnfiskafli var 62.000 tonn samanborið við 54.500 tonn í marsmánuði 2003 og jókst því um 7.500 tonn á milli ára. Þorskafli var 34.700 tonn en 31.500 tonn bárust á land í marsmánuði 2003 og er það aukning um 3.100 tonn. Af ýsu veiddust liðlega 10.100 tonn og er það rúmlega tvöfalt meira magn en á sama tíma í fyrra. Ufsaafli var 5.300 tonn og er það ríflega 1.100 tonnum meira en í marsmánuði 2003. Karfaafli var 7.300 tonn en það er tæplega 1.600 tonna samdráttur milli ára.
     Flatfiskafli var 3.200 tonn og dróst saman um tæplega 400 tonn frá marsmánuði 2003. Mestur varð grálúðuaflinn eða 1.300 tonn en 750 tonn veiddust af skarkola og rúmlega 600 tonn af skrápflúru.
     Af loðnu veiddust 193.000 tonn en í marsmánuði 2003 var loðnuaflinn alls 116.000 tonn og nemur aukningin milli ára 77.000 tonnum. Enginn síldarafli barst á land í mánuðinum en í marsmánuði 2003 veiddust 1.200 tonn.
     Skel- og krabbadýraafli var rúmlega 2.400 tonn samanborið við tæplega 3.800 tonna afla í mars 2003. Hér munar mestu að kúfiskafli var enginn í nýliðnum mánuði en rúm 1.000 tonn á árinu 2003. Rækjuaflinn var 2.400 tonn og dróst saman um 300 tonn.
     Heildarafli íslenskra skipa á fyrsta fjórðungi ársins 2004 var 639.700 tonn og er það ríflega 90.000 tonnum minni afli en á árinu 2003. Botnfiskafli var tæp 135.000 tonn sem er rúmum18.000 tonnum meiri afli en á sama tímabili 2003. Þorskaflinn var 73.600 tonn og er það aukning um 7.300 tonn. Ýsuaflinn var nærri 24.500 tonn sem er aukning um 10.000 tonn.
     Flatfiskaflinn var 6.900 tonn, þar af voru 3.000 tonn af grálúðu, tæplega 1.500 tonn af skarkola og 1.300 tonn af skrápflúru.
     Loðnuaflinn var orðinn 480.000 tonn sem er ríflega 104.000 tonna samdráttur frá árinu 2003.
     Skel- og krabbadýraaflinn var tæplega 5.400 tonn samanborið við nærri 10.000 tonna afla árið 2003. Mestu munar um 1.700 tonna samdrátt í rækjuafla og tæplega 1.800 tonna samdrátt í kúfiskafla. Þá gætir 800 tonna samdráttar í hörpudiskafla vegna veiðibanns í Breiðafirði.

¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.