FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. APRÍL 2005

Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum marsmánuði var tæplega 212.800 tonn sem er rúmum 52.100 tonnum minni afli en í marsmánuði 2004 en þá veiddust rúm 264.900 tonn. Milli marsmánaða 2004 og 2005 dróst verðmæti fiskaflans saman, á föstu verðlagi ársins 2003, um 11,8% en það sem af er árinu jókst það um 4% miðað við árið 2004.
     Botnfiskafli var um 60.200 tonn samanborið við tæp 61.800 tonn í marsmánuði 2004 og dróst því saman um tæplega 1.600 tonn milli ára. Þorskafli var 28.200 tonn en 34.500 tonn bárust á land í marsmánuði 2004 og er það samdráttur upp á rúm 6.300 tonn. Af ýsu veiddust 11.700 tonn og er það rúmra 1.500 tonna aukning frá fyrra ári. Ufsaafli var rúm 5.300 tonn sem er nánast óbreytt aflamagn frá fyrra ári. Karfaafli var tæp 9.900 tonn sem er tæplega 2.700 tonna meiri afli en í mars árið áður.
     Flatfiskafli var 2.500 tonn og dróst saman um rúm 700 tonn frá marsmánuði 2004. Mestur var skarkolaafli eða 850 tonn og hafði aukist frá fyrra ári um 100 tonn. Hins vegar dróst grálúðuaflinn saman milli ára um tæp 600 tonn, en rúmlega 700 tonnum var landað af grálúðu í mars 2005 miðað við rúm 1.300 tonn árið áður. Töluverður samdráttur var einnig í skrápflúruafla en tæpum 300 tonnum var landað í marsmánuði 2005 og er samdrátturinn tæp 400 tonn frá fyrra ári.
     Af loðnu veiddust 145.100 tonn en í marsmánuði 2004 var loðnuaflinn 193.500 tonn og nemur samdrátturinn 48.400 tonnum. Engin síld barst á land í marsmánuði en kolmunnaveiði hófst og nam aflinn rúmum 4.100 tonnum sem er tæplega 300 tonnum meira en í marsmánuði 2004.
     Skel- og krabbadýraafli í marsmánuði var rúm 800 tonn samanborið við rúmlega 2.400 tonna afla í sama mánuði 2004. Skel- og krabbadýraaflinn samanstóð að mestu af rækju en rækjuaflinn dróst saman um tæp 1.600 tonn frá fyrra ári. Um 9 tonnum hefur verið landað af humri samanborið við 25 tonn í marsmánuði 2004.
     Heildarafli íslenskra skipa á fyrstu þremur mánuðum ársins 2005 var tæp 750.300 tonn og var það tæplega 109.800 tonnum meiri afli en á sama tímabili 2004.
     Botnfiskafli var 143.900 tonn sem er tæpum 9.300 tonnum meiri afli en á fyrra ári. Þorskaflinn var 70.900 tonn og dróst saman um tæp 2.700 tonn. Ýsuaflinn var 29.400 tonn sem er aukning um rúm 4.900 tonn og þá var ufsaaflinn tæp 14.700 tonn sem var 2.600 tonnum meiri afli en fyrstu þrjá mánuði ársins 2004.
     Flatfiskaflinn var 5.400 tonn þar af voru rúm 2.000 tonn af grálúðu, 1.500 tonn af skarkola og tæp 500 tonn af skrápflúru.
     Loðnuaflinn nam 593.900 tonnum sem er aukning í magni um 113.800 tonn.
     Skel- og krabbadýraaflinn var tæp 1.000 tonn samanborið við 5.400 tonna afla á sama tímabili 2004. Mestu munar um 3.200 tonna samdrátt í rækjuafla auk þess sem enginn kúfiskur barst á land fyrstu þrjá mánuði ársins en tæp 1.300 tonn höfðu borist á land á sama tíma árið 2004.

 

¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.