FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. APRÍL 2009


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 9,8% meiri en í mars 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 14,2% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn í mars 2009 var 108.612 tonn samanborið við 169.690 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli jókst um rúm 6.000 tonn frá mars 2008 og nam 60.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn 27.000 tonn og jókst um tæp 5.000 tonn og karfaaflinn rúm 11.000 sem var aukning um 1.300 tonn milli ára. Ýsuaflinn stóð hins vegar nokkurn vegin í stað milli ára í tonnum talið og nam um 11.600 tonnum, en  ufsaaflinn dróst saman um 1.100 tonn samanborið við mars 2008 og nam um 5.000 tonnum.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 45.000 tonnum sem er um 68.000 tonnum minni afli en í mars 2008. Samdrátt í uppsjávarafla má rekja til þess að engin loðna var veidd nú í marsmánuði, samanborið við tæplega 96.000 tonna veiði árið áður. Hins vegar var um 22.000 tonna aukning í veiði á kolmunna á milli ára og var heildarafli kolmunna um 39.000 tonn. Auk þess veiddust í mars rúm 5.000 tonn af gulldeplu og 500 tonn af síld

Flatfiskaflinn var rúm 2.500 tonn í mars og jókst um tæp 800 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 444 tonnum samanborið við 728 tonna afla í mars 2008.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.