FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. APRÍL 2010


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 21,5% minni en í mars 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 14.2% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 117.707 tonnum í mars 2010 samanborið við 108.136 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 12.000 tonn frá mars 2009 og nam 48.600 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 21.600 tonnum, sem er samdráttur um 5.400 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 7.800 tonnum sem er um 3.800 tonnum minni afli en í mars 2009. Karfaaflinn dróst saman um 1.800 tonn samanborið við mars 2009 og nam tæpum 9.200 tonnum. Um 3.800 tonn veiddust af ufsa sem er um 1.500 tonnum minni afli en í mars 2009.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 65.400 tonnum sem er um 21.000 tonnum meiri afli en í mars 2009. Aukningu í uppsjávarafla má rekja til loðnuafla upp á 55.000 tonn en loðnuvertíðinni var hins vegar lokið í mars 2009. Kolmunnaafli nam 10.000 tonnum og dróst saman um 28.400 tonn frá fyrra ári.

Flatfiskaflinn var rúm 2.550 tonn í mars 2010 líkt og árið áður. Annar afli nam rúmum 1.000 tonnum.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2008. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.