Landaður afli í mars 2026 var tæp 108 þúsund tonn. Þar af nam loðnuaflinn rúmum 65 þúsund tonnum. Botnfiskafli nam tæpum 41 þúsund tonnum sem er 17% minni afli en í mars 2025.
Á 12 mánaða tímabili, frá apríl 2025 til mars 2026, var landað samtals 1.142 þúsund tonnum sem er 15% meiri afli en á sama tímabili ári fyrr. Aukning var í afla uppsjávartegunda um 32% og vegur loðna þungt í þeirri aukningu. Botnfiskafli dróst hins vegar saman um 5% á milli tímabila og samdráttur var einnig í flatfiskafla um 11%.